Skoðun

Breytingar á neyslusköttum – mikilvægt skref í rétta átt

Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar
Boðaðar breytingar á virðisaukaskatti og afnám vörugjalda í nýju fjárlagafrumvarpi eru afar jákvæðar fyrir íslenskt efnahagslíf. Bæði neytendur og framleiðendur munu njóta góðs af breytingunum og innheimta skatta fyrir ríkissjóð verður einfaldari og skilvirkari. Neytendur munu enn fremur njóta minnkandi kostnaðar við innheimtu vörugjalda. Hins vegar eru það mikil vonbrigði að til standi að hætta endurgreiðslu 100% virðisaukaskatts vegna vinnu á byggingarstað.

Breytingar á virðisaukaskatti eiga að taka gildi um næstu áramót og fela í sér að efra þrep skattsins lækkar úr 25,5% í 24% en neðra þrepið hækkar úr 7% í 12% auk þess sem stofn skattsins breikkar. Vissulega hækkar almennt matarverð, en á móti vegur afnám vörugjalda á matvæli sem voru afar íþyngjandi og á margan hátt falin skattlagning. Þessi breyting er í góðu samræmi við áherslur Samtaka iðnaðarins á að dregið sé úr bili milli skattþrepa og hætt innheimtu ógegnsærra og óskilvirkra vörugjalda. Í heild sinni er þessum aðgerðum ekki ætlað að auka tekjur ríkissjóðs og því verða ekki neikvæð áhrif á verðlag. Raunar má færa gild rök fyrir hinu gagnstæða.

Mikil vonbrigði

Samtök iðnaðarins hafa um langt árabil barist fyrir afnámi vörugjalda enda byggði sú skattlagning á óljósum forsendum.

Það eru hins vegar mikil vonbrigði að hætta eigi við 100% endurgreiðslu á virðisaukaskatti vegna vinnu á byggingarstað. Ríkir almannahagsmunir réðu því að stjórnvöld ákváðu að fara í þessa aðgerð árið 2009. Atvinnuástand var slæmt og auk þess var endurgreiðslan mikilvægur liður í að draga úr svartri atvinnustarfsemi.

Samkvæmt nýju fjárlagafrumvarpi stendur til að lækka endurgreiðsluna aftur í 60%.

Samtök iðnaðarins styðja að endurgreiðsluheimild til sveitarfélaga verði felld úr gildi enda ekki þörf á að hvetja til opinberra byggingaframkvæmda. Samtökin telja hins vegar fulla ástæðu til að framlengja endurgreiðsluna í almennri byggingastarfsemi til að sporna gegn svartri atvinnustarfsemi. Færa má fyrir því gild rök að 100% endurgreiðsla hafi jákvæð áhrif á fjárhag ríkissjóðs enda mikilvægur hvati þess að hafa öll viðskipti uppi á borði.

Einfaldara og skilvirkara skattkerfi hefur frá upphafi verið eitt helsta baráttumál Samtaka iðnaðarins. Með þessum breytingum eru stigin mikilvæg skref í rétta átt. Halda þarf áfram á þeirri braut og vilja Samtök iðnaðarins eiga gott samstarf við stjórnvöld um næstu skref.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×