Skoðun

Mikilvægi Ríkisútvarpsins

Katrín Jakobsdóttir skrifar
Undanfarna daga hefur staðið mikill styrr um Ríkisútvarpið. Núverandi ríkisstjórn kaus að breyta lögum árið 2013 þar sem boðuð var lækkun á útvarpsgjaldinu og komið í veg fyrir að það rynni óskert til Ríkisútvarpsins. Nú virðist stjórnarmeirihlutinn ætla sér að hrinda þessari lækkun í framkvæmd án þess að nokkur þarfagreining eða faglegar ástæður liggi þar að baki þó að fallist hafi verið á að hið lægra gjald renni óskert til útvarpsins.

Útvarpsgjaldið á Íslandi er ekki hátt í alþjóðlegum samanburði þó að við séum fámenn þjóð, lægra í krónum talið en í Noregi og á Bretlandi, og sú ákvörðun stjórnvalda að lækka það virðist fyrst og fremst ráðast af einhverjum ranghugmyndum um að RÚV sé ofhaldið. Staðreyndin er sú að starfsmönnum á RÚV hefur fækkað um tæpan þriðjung frá árinu 2008 og starfsemin verið endurskipulögð með mikilli hagræðingu. Engin fagleg rök eru fyrir lækkuninni og ljóst að hún mun hafa víðtæk áhrif á starfsemi Ríkisútvarpsins til hins verra.

Enn dapurlegra er að þessar fyrirætlanir koma beint ofan í metnaðarfulla framtíðarsýn stjórnenda útvarpsins. Þar eru höfuðatriðin að efla þjónustu við landsbyggðina og auka svæðismiðlun, efla innlenda dagskrárgerð, sérstaklega fyrir börn og ungmenni og gera átak í safnamálum útvarpsins en í geymslum þess leynast mikil menningarverðmæti.

Á Íslandi býr 320 þúsund manna þjóð sem á allt sitt undir því hvernig við hlúum að sögu okkar og menningu. Þar er tungumálið lykilþáttur. Ríkisútvarpið hefur mikilvægu hlutverki að gegna í þeim málum og því nauðsynlegt að við sinnum öllum þeim þáttum sem birtast í framtíðarsýn útvarpsins. Þetta hlutverk RÚV er þeim mun mikilvægara ef ríkisstjórnin hyggst virkilega halda áfram á sömu vegferð í menningarmálum almennt, hækka skatta á tónlist og bækur og hunsa tillögur um að efla notkun íslenskrar tungu í stafrænum heimi. Við stöndum frammi fyrir þeirri hættu að almannaútvarpið verði skorið svo niður að það hafi engin tök á að sinna hlutverki sínu sem þjóðarútvarp.

Það er útlátalítið fyrir meirihlutann að styðja við Ríkisútvarpið. Það eina sem þarf er að falla frá lækkun útvarpsgjaldsins og standa við það sem áður hefur verið samþykkt; að það renni óskert til útvarpsins.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×