FH semur við belgískan miðjumann Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. febrúar 2015 13:47 Jeremy Serwy og Jón Rúnar Halldórsson. Vísir/Valli
Þetta var stór dagur fyrir leikmannamál FH-inga í Pepsi-deildinni í sumar því félagið skrifaði undir samning við tvo sterka leikmenn á blaðamannafundi í Kaplakrika. Bjarni Þór Viðarsson er kominn heim og skrifaði undir þriggja ára samning en þá samdi Hafnarfjarðarfélagið einnig við Belgann Jeremy Serwy. Jeremy Serwy gerir tveggja ára samning. Jeremy Serwy, sem er kantmaður, var í herbúðum hjá þýska liðinu Borussia Dortmund á síðasta tímabili en spilaði þó bara með varaliði félagsins. Hann fór þaðan til ungverska liðsins Újpest Budapest. Jeremy Serwy er fæddur í júní 1991 og verður því 24 ára í sumar. Áður en hann var hjá varaliði Borussia Dortmund þá spilaði hann með Charleroi SC og Zulte Waregem. Jeremy Serwy var á reynslu hjá FH fyrr í vetur og skoraði þá tvö frábær mörk í Fótbolta.net mótinu en þau komu bæði með skotum beint úr aukaspyrnu í leikjum liðsins á móti Breiðabliki og Þrótti. Það verður gaman að fylgjast með því hvort að Serwy sé þessi aukaspyrnusérfræðingur sem hann leit út fyrir að vera í þessum tveimur frábæru mörkum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Launaði greiðann og gaf liðsfélaganum sigurinn Formúla 1 „Ég þarf smá útrás“ Handbolti Sjö marka fyrri hálfleikur skaut Skyttunum í annað sætið Enski boltinn Frábær byrjun Slot ekki nóg til að slá út Solskjær Enski boltinn Tryggvi frákastahæstur í tapi gegn gömlu félögunum Körfubolti Musiala bjargaði stigi fyrir Bayern Fótbolti Fallbaráttulið Nantes tók stig af meisturunum Fótbolti Óskar Hrafn opnar sig um Haugesund: Best að falla á eigið sverð Fótbolti HM í fótbolta 2034 mun fara fram um vetur Fótbolti Öruggur sigur ÍBV gegn Val Handbolti Fleiri fréttir Keflvíkingar keyptu leikmann frá Njarðvík Elfar Árni heim í Völsung Jóhann semur og heldur Jóhanni í teyminu Eiður Aron áfram á Ísafirði Andri Rúnar í Stjörnuna Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Tólf leikmenn komnir til KR Geir fer aftur í Vesturbæinn FH-ingar kynntu Birki og Braga Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt Sjá meira