Annað tap Þróttar í röð | KA fjarlægist toppliðin Ingvi þór Sæmundsson skrifar 18. júlí 2015 18:05 Jóhann Helgi tryggði Þórsurum dýrmætan sigur á Þrótti. vísir/daníel
Þróttur tapaði sínum öðrum leik í röð í 1. deildinni þegar Þór lagði toppliðið að velli, 2-1, á Þórsvelli í dag. Rafn Andri Haraldsson kom Þrótti í 1-0 á 40. mínútu og þannig var staðan fram á 79. mínútu þegar varamaðurinn Gunnar Örvar Stefánsson jafnaði metin með sínu fimmta deildarmarki í sumar. Það var svo Jóhann Helgi Hannesson kom skoraði sigurmark Þórsara átta mínútum fyrir leikslok. Stigin þrjú koma Þór upp fyrir erkifjendurna í KA sem gerðu 1-1 jafntefli við Fram á Framvellinum í Úlfarsárdal. KA-menn, sem tjölduðu miklu til fyrir tímabilið, eru nú sjö stigum frá Pepsi-deildarsæti og þurfa heldur betur að gefa í ef þeir ætla að ná markmiði sínu að spila í deild þeirra bestu á næsta ári. Ævar Ingi Jóhannesson kom KA yfir á 22. mínútu með sínu 10. marki í sumar en Ingiberg Ólafur Jónsson tryggði Fram stig þegar hann jafnaði metin á 77. mínútu. Tveir leikmenn fengu að líta rauða spjaldið í leiknum. Hilmar Trausti Arnarsson, vinstri bakvörður KA, fékk að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt á 80. mínútu og 10 mínútum síðar fauk Alexander Aron Davorsson, framherji Fram, einnig af velli. Frammarar eru í 10. sæti deildarinnar með 12 stig, fjórum stigum stigum frá fallsæti. Fram hefur ekki unnið sigur í fjórum síðustu leikjum sínum.Fyrr í dag gerðu BÍ/Bolungarvík og Selfoss 2-2 jafntefli.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Geir fer aftur í Vesturbæinn Íslenski boltinn Enn erfiðara að komast á heimsleikana í CrossFit á næsta ári Sport Tímabært að breyta til Handbolti Blóðug hlaupaferð hjá Guðlaugu Eddu Sport Tólf leikmenn komnir til KR Íslenski boltinn Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Fótbolti Kallaði dómarann tík og rúmlega það Körfubolti Fleiri fréttir Tólf leikmenn komnir til KR Geir fer aftur í Vesturbæinn FH-ingar kynntu Birki og Braga Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Kristófer áfram í Kópavogi Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn Sjá meira