Skoðun

Fleiri glerhótel

Pawel Bartoszek skrifar
„Round One. Fight!“ Þegar ég var að alast upp var sjoppa á móti Melaskóla. Þar var hægt að kaupa nammi, ís og annað slæmt. Já, þetta þótti slæmt. Að hanga í sjoppu var það ófágaðasta sem barn á miðstigi gat gert. Í sjoppunni var ófágaður spilakassi, þar sem eldri krakkarnir spiluðu Street Fighter II. Ég hvorki þorði né tímdi í kassann en ég horfði á eldri krakkana gera það. Ég sá þá vinna leikinn með japanska karatekarlinum Ryu og rússneska grímukónginum Zangief, sem þannig séð gat ekki rassgat.

„Round Two. Fight!“ Þegar ég var fullorðinn lokaði sjoppan og fljótlega var húsnæðinu breytt í íbúð. Áreiðanlega frekar óhentuga og skítmixaða íbúð eins og stundum vill verða með þessar gömlubúðaríbúðir. Þegar labbað er fram hjá blasir við minning um starfsemi sem eitt sinn gerði gagn en er nú horfin. Sumir tala niður hótel, túristabúðir og skyndibitakeðjur. Ég vil tala niður íbúðir. Íbúðir eru fita borgarumhverfis. Það er auðveldara að bæta við sig fitu en breyta henni í annað. Enginn fer að safna undirskriftum ef breyta á sjoppu í íbúð. En ef fara á í hina áttina þá fá margir áhyggjur. Hvers konar starfsemi er þetta? Eykst umferðin? Viljum við það?

„Round Three. Fight!“ Þar sem ég rölti í bænum rakst ég á spilasal með retróleikjum. Þetta er dæmi um hvernig atvinnustarfsemi í fúngerandi borg getur verið alls konar. Þetta er dæmi um hvernig ferðamennskan elur af sér eitthvað gott. Ég er líklegri til að eyða pening í gömlum spilakassa þegar ég er á ferðalagi. Ég er líklegri til að borða á veitingastað þegar ég er í fríi. Ég set 200 krónur í kassann og vel japanska karatekarlinn Ryu. Nú á ég pening og er sama þótt ég sé lélegur. Og það er enginn eldri að horfa á hvort sem er.

Hótelin og túrisminn eru að gera frábæra hluti fyrir Reykjavík. Þess vegna hef ég ekkert á móti nýju hóteli í Lækjargötunni, nýjum kleinuhringjastað á Laugaveginum eða því að einhver ætlar að breyta skemmtistað sem nýtist hluta nætur fá kvöld í eitthvað annað. Ég hef ekkert á móti því að fólk nýti hús í það sem þau nýtast best í. Ef þetta feilar þá kemur bara eitthvað annað í staðinn seinna. Hótel eru ekki að eilífu.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×