Leikurinn verður ekki á risaskjá í Herjólfsdal | Sýndur á Háaloftinu 30. júlí 2015 13:15 Úr leik liðanna fyrr í sumar. Vísir/Vilhelm
Sýnt verður frá leik KR og ÍBV á Háaloftinu í Vestmannaeyjum en ætlunin er að stuðningsmenn liðsins safnist saman til þess að horfa á leikinn í sameiningu. Upphaflega var áætlað að horfa á hann í Herjólfsdal á risaskjá en vegna veður hefur verið ákveðið að flytja útsendinguna inn á Háaloft. ÍBV er annað árið í röð í undanúrslitum Borgunarbikarsins og annað árið í röð er það KR sem bíður Eyjamanna. Að þessu sinni fer leikurinn fram í Vesturbænum en þetta verður í fjórða sinn á síðustu fjórum árum sem þessi lið mætast í bikarnum. Hefur ÍBV ekki enn tekist að vinna KR í þessum þremur tilraunum og ljóst er að róðurinn verður þungur fyrir Eyjamenn í kvöld. Tilkynningu ÍBV má lesa hér fyrir neðan.Stöð2 sport og 365 miðlar hafa ákveðið að bjóða Eyjamönnum og öðrum gestum Þjóðhátíðar á leik KR og ÍBV í 4ra liða úrslitum Borgunarbikars karla í knattspyrnu. Leikurinn fer fram á Alvogenvellinum, heimavelli KR-inga og hefst kl. 18. Til stóð að sýna hann inni í Herjólfsdal á risaskjánum þar, en vegna óhagstæðrar veðurspár hefur verið ákveðið að flytja hann inn og flyst hann því upp á Háaloft.Þar verður hægt að kaupa sér ódýrara drykki og fer allur ágóði sölunnar óskiptur til knattspyrnuráðs karla í knattspyrnu.Það er því lag að horfa á leikinn í góðra vina hópi og styðja í leiðinni við strákana.Knattspyrnuráð karla vill nota tækifærið og þakka Stöð2 sport og 365 miðlum fyrir þetta flotta boð og vonandi fá áhorfendur frábæran leik, sem endar vel ;D).ÁFRAM ÍBV, ALLTAF, ALLSSTAÐAR.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Hareide hættur með landsliðið Fótbolti Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn Geir fer aftur í Vesturbæinn Íslenski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Tólf leikmenn komnir til KR Íslenski boltinn Enn erfiðara að komast á heimsleikana í CrossFit á næsta ári Sport Tímabært að breyta til Handbolti Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Enski boltinn Blóðug hlaupaferð hjá Guðlaugu Eddu Sport Fleiri fréttir Tólf leikmenn komnir til KR Geir fer aftur í Vesturbæinn FH-ingar kynntu Birki og Braga Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Kristófer áfram í Kópavogi Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn Sjá meira