Innlent

Götum lokað á Völlunum og vopnaðir lögreglumenn segja fólki að halda sig innandyra

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Séð úr íbúð á Kirkjuvöllum á meðan aðgerðum lögreglu stóð.
Séð úr íbúð á Kirkjuvöllum á meðan aðgerðum lögreglu stóð. Vísir
Uppfært klukkan 01:04

Lögregla hefur yfirbugað manninn og er hann nú á leið í varðhald samkvæmt heimildum Vísis.

Þetta vitum við um aðgerð sérsveitar lögreglu í Vallahverfinu í kvöld:

  • Sérsveitarmenn sátu um íbúð á 5. hæð í fjölbýlishúsi við Kirkjuvelli 7 í Hafnarfirði
  • Aðgerðin beindist gegn einstaklingi í íbúðinni sem hefur endurtekið komið við sögu lögreglu
  • Íbúi á 6. hæð heyrði öskur og læti úr íbúðinni fyrr um kvöldið
  • Lokað var fyrir umferð inn í Vallarhverfið
  • Lögregla hvatti fólk til að halda sig innandyra


Uppfært klukkan 00:24

Sérsveitarmenn eru enn að störfum á ganginum í blokkinni við Kirkjuvelli 7. Öskur hafa heyrst í húsinu.

Uppfært klukkan 00:17

Steinunn Þorsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar, segir á Facebook-síðu íbúa Vallahverfis að hún hafi verið að ræða við lögregluna.

Segist lögreglan búast við að aðgerðir að vettvangi taki ekki mjög langan tíma, að um sé að ræða einstakling í einni íbúð og það sé engin hætta á meðan fólk heldur sig fyrir utan lokuð svæði.



Lokunarsvæðið. Síðan var innra lokunarsvæði sem var frekar óljóst þegar rætt var við lögreglu og munur á lokunarsvæðunum ekki skilgreindur.

Posted by Fjarðarpósturinn - bæjarblað Hafnfirðinga on Sunday, August 9, 2015
Loftmynd frá aðgerðum lögreglu við Kirkjuvelli.Vísir
Uppfært klukkan 23:59

Samkvæmt heimildum Vísis er íbúinn á Kirkjuvöllum, þaðan sem lætin bárust í kvöld, góðkunningi lögreglunnar. Hann var síðast dæmdur í tíu mánaða fangelsi í mars síðastliðnum en á langan afbrotaferil að baki. 

Veistu meira um málið? Sendu okkur línu eða myndir á [email protected]

Uppfært klukkan 23:45
 

Fjöldi sérsveitarmanna er á gangi á fimmtu hæð í fjölbýlishúsi á Kirkjuvöllum 7 í Hafnarfirði. Ekki liggur ljóst fyrir en óhljóð bárust úr íbúð á hæðinni fyrr í kvöld.

Benedikt Mewes, íbúi í blokkinni, segir við Vísi að hann hafi verið sofandi þegar hann vaknaði við óhljóðin. Sambýlismaður hans hafi heyrt afar hátt öskur úr íbúð á hæðinni fyrir neðan. Svo hafi verið barið af afli með járnstöng í handriðið á svölunum sem eru í sjónlínu frá svölum þeirra Benedikts. 

Benedikt telur því að ekki hafi verið um skothljóð að ræða eins og aðrir íbúar í hverfinu töldu sig hafa heyrt í kvöld. 

Biggi lögga tjáir sig um aðgerðir lögreglu á Facebook

Til nágranna minna á Völlunum í Hafnarfirði. Þeir sem eru vakandi þegar þetta er skrifað og eru á fésbókini vita væ...

Posted by Biggi lögga on Sunday, August 9, 2015
Annar íbúi í blokkinni hringdi í lögreglu og eru sérsveitarmenn sem fyrr segir staddir á hæðinni þegar þetta er skrifað. Þeir höfðu ekki farið inn í íbúðina þegar Benedikt leit fram á gang um klukkan 23:35.

Benedikt segir lögreglu hafa sagt sér að halda kyrru fyrir inni. Það vill hins vegar svo óheppilega til að hann þarf að vera kominn út á Keflavíkurflugvöll klukkan 01.

Frá lögregluaðgerðum við Kirkjuvelli í kvöld.Vísir
Uppfært klukkan 23:30 

Fréttamaður 365 miðla á staðnum staðfestir að öllum leiðum inn í Vallarhverfið hafi verið lokað. Lögregla veitir engar upplýsingar um aðgerðina að svo komnu máli.



Fréttin verður uppfærð eftir því sem frekari upplýsingar berast.



Fyrsta frétt

Fjölmennt lið lögreglu er statt í Vallarhverfinu í Hafnarfirði og hefur verið frá því um klukkan 22:30 í kvöld. Götum hefur verið lokað og íbúum sagt að halda sig innandyra. Sérsveitarmenn eru á meðal lögreglumanna og hefur fjölgað mjög í teymi lögreglu undanfarna klukkustund.

Íbúar á svæðinu segja að bæði sé búið að loka fyrir umferð um Kirkjuvelli og Bjarkavelli.

Útsýni úr íbúð á Akurvöllum.Mynd/Guðmundur Þór
Örvar Þór Guðmundsson, íbúi í hverfinu, lýsir því í hópnum Íbúar á Völlunum á Facebook hvernig þrír vopnaðir lögreglumenn hafi hlaupið framhjá bíl sínum og haldið inn á plan nærri Akurvöllum. Þá segjast aðrir íbúar hafa séð liðsmenn sérsveitar í garðinum hjá sér.

Sjúkrabíll er til taks á svæðinu en ekki fást upplýsingar frá lögreglu enn sem komið er.

Starfsmaður slökkviliðsins staðfesti við Vísi að lögregla væri í aðgerð og þeir væru til taks.

Að neðan má sjá myndband frá lögregluaðgerðum í Hafnarfirði í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×