Heilsa

Kynfræðsla í 1.bekk

sigga dögg skrifar
Vísir/Getty
Í Hollandi byrjar formleg kynfræðsla hjá fjögurra ára gömlum börnum.

Nú kunna sumir að reka upp stór augu en það sem er raunverulega verið að gera er að leggja grunninn að þekkingu um tilfinningar, ástina, líkamann og að virða eigin mörk og annarra.

Holland státar af myndarlegri heilbrigðis tölfræði þegar kemur að kynlífi, eins og þessi grein telur upp, og hefur það löngum sýnst sig í rannsóknum að kynfræðsla hvetur ekki til kynlífs.

Á fimmtudaginn verður haldið málþing og vinnusmiðja um kynfræðslu fyrir börn á aldrinum 5 til 8 ára á Natura hótel.

Þetta er því kjörið tækifæri fyrir bæði leikskólakennara, kennara og foreldra til að fræðast um hvernig megi svara þessum hjartans spurningum.

Málþingið er hluti af samnorrænni kynfræði ráðstefnu og munu bæði innlendir og erlendir fyrirlesarar fræða.

Meðal fyrirlesara verða Sigrún Daníelsdóttir sálfræðingur og mun hún fjalla um mikilvægi jákvæðrar líkamsímyndar og hvernig við tölum við börn um líkamann og verum góðar fyrirmyndir.

Suss Ahman er finnskur kynfræðingur sem fjallar um kynfræðslu til barna og hvernig hún er fer fram í Finnlandi.

Einnig verða til sýnis brúður og spil sem kenna börnum á líkamann auk þess sem Sigga Dögg kynfræðingur mun fjalla um kynfræðslu á Íslandi og taka dæmi um hvernig megi svara spurningum barna um hvernig þau verða til, og hvað einkenni heilbrigðan kynferðislegan áhuga og hvernig megi greina heilbrigðan frá varhugaðverðum.

Hægt er að senda skilaboð til að fá að vita meira og skrá sig.




Tengdar fréttir

Kynferðislegir leikir barna

Flest börn leika einhvers konar kynferðislega leiki á einum tímapunkti en hvað er eðlilegt í þeim málum?

Kynlífsforvitni unglinganna

Algengar spurningar sem grunnskólanemendur hafa um kynlíf og spyrja að nafnlaust í kynfræðslu






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.