Skurðlæknirinn skar upp Fálkana Henry Birgir Gunnarsson skrifar 16. október 2015 17:45 Brees er hér á ferðinni í nótt. vísir/getty
New Orleans Saints varð í nótt fyrsta liðið í vetur sem nær að vinna Atlanta Falcons. Lokatölur í fimmtudagsleiknum 31-21 fyrir Dýrlingana. Fálkarnir mættu borubrattir til New Orleans með fimm sigra í röð á bakinu gegn liði New Orleans sem hafði aðeins unnið einn leik en tapað fjórum. Það varð snemma ljóst í hvað stefndi. Dýrlingarnir tóku strax forystuna og létu hana aldrei af hendi. Hinn magnaði leikstjórnandi Saints, Drew Brees, oft kallaður skurðlæknirinn, var í banastuði og kláraði 30 af 39 sendingum sínum í leiknum. Hann kastaði 312 jarda og ein af sendingum hans endaði með snertimarki. Saints gerði heldur engin mistök á meðan tapaðir boltar fóru illa með Falcons. Hlauparinn Mark Ingram skoraði tvö snertimörk fyrir Saints og útherjinn Benjamin Watson átti sinn besta leik á ferlinum. Greip tíu bolta fyrir samtals 127 jördum. Hann skoraði einnig eitt snertimark.
NFL Mest lesið Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Geir fer aftur í Vesturbæinn Íslenski boltinn Enn erfiðara að komast á heimsleikana í CrossFit á næsta ári Sport Tímabært að breyta til Handbolti Blóðug hlaupaferð hjá Guðlaugu Eddu Sport Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Fótbolti Kallaði dómarann tík og rúmlega það Körfubolti Verstappen áfram hjá Red Bull Formúla 1 Fleiri fréttir Tólf leikmenn komnir til KR Vann hæsta verðlaunafé sem golfkona hefur fengið Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool Geir fer aftur í Vesturbæinn Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Tímabært að breyta til Enn erfiðara að komast á heimsleikana í CrossFit á næsta ári Blóðug hlaupaferð hjá Guðlaugu Eddu Dagur Dan og félagar í undanúrslit eftir sigur á liðinu sem stoppaði Messi „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ FH-ingar kynntu Birki og Braga „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Dagskráin í dag: Tími fyrir endurheimt Kallaði dómarann tík og rúmlega það Verstappen áfram hjá Red Bull Atli og Eiður í KR Chicago Bears leita nýrra leiða til að tapa leikjum Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Benedikt markahæstur í sannfærandi sigri Kolstad LaMelo Ball í 50-stiga klúbbinn Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Aftur eins marks tap en nú tekur EM við Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Lokað á útsendingu frá generalprufu Íslands Sjá meira