Skoðun

Hvað verður um RÚV?

Björg Eva Erlendsdóttir skrifar

Óheilindi í ríkisstjórnarflokkunum og samkeppnisfjölmiðlum í garð Ríkisútvarpsins kristallast þessa daga í umræðum um svonefnda Eyþórsskýrslu menntamálaráðherra. Í miðju umrótinu gengur út formaður stjórnar RÚV, Ingvi Hrafn Óskarsson, og ber við önnum á lögmannsstofu sinni. Morguninn eftir er uppsláttur Moggans að Ingvi Hrafn og aðrir stjórnendur RÚV hafi veitt þingnefnd rangar upplýsingar um tölvupóst frá fjármálaráðuneytinu.



Fréttin byggir á viðtali við Guðlaug Þór Þórðarson, varaformann fjárlaganefndar, og er árás á stjórnendur Ríkisútvarpsins. Stjórnendur RÚV töldu póst fjármálaráðuneytis staðfesta að með ráðstöfunum til að laga fjárhaginn hafi RÚV uppfyllt skilyrði fyrir 182 milljóna aukaframlagi. Þetta segir Guðlaugur Þór vera rangt.



Túlkun stjórnenda RÚV á tölvupóstum milli fjármálaráðuneytis og stjórnarformanns miðaðist við að verið væri að vinna með stjórnvöldum, en ekki gegn þeim, að lausn á vanda RÚV. Og vissulega voru stjórnvöld að vinna með Ríkisútvarpinu, í sameiginlegri nefnd með forsætis-, mennta- og fjármálaráðuneyti. Því er undarlegt að löngu síðar komi upp ný túlkun á efni tölvupósts frá í mars. Pósts sem einungis átti að staðfesta sameiginlegan skilning, eftir samvinnu. En þar virðist glæpur stjórnenda RÚV einmitt liggja. Að hafa unnið vinnu með árangri, meðan stjórnvöld og fjárveitingavaldið unnu gegn þeim, drógu mál á langinn, flæktu þau og affluttu.



Rekstur Ríkisútvarpsins hefur verið hallalaus síðasta árið. Þess er ekki getið í umræðum um skýrsluna. Skuldir lækka meira en í sögu félagsins, með lóðasölu og húsnæðisleigu. Starfsfólk er pínt áfram inn í vaxandi óvissu, aukið vinnuálag og pólitískt einelti. Skýrsla Eyþórs er sögð afhjúpandi, en hún afhjúpaði ekki annað en einbeittan pólitískan vilja höfunda til að leggja Ríkisútvarpið niður.



Stjórn Ríkisútvarpsins, vön ásökunum um að vera gagnslaus bitlingastjórn flokkanna, stóð saman gegn árás fjárveitingavaldsins á Ríkisútvarpið í fyrra. Í ár var upplýsingum haldið frá henni. Skýrsla Eyþórs var rýnd af öðrum fjölmiðlum, með almannatengslaráðgjafa, áður en stjórn RÚV sá hana. Framhaldið var á sömu leið. Er nema von að stjórnarformaðurinn snúi sér að uppbyggilegri verkefnum? En hvað verður um Ríkisútvarpið?




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×