Niðurstaða um mánaðamótin Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 14. febrúar 2015 13:00 Persónuvernd athugar samskipti þáverandi lögreglustjóra og aðstoðarmanns ráðherra í aðdraganda lekamálsins. Fréttablaðið/Stefán
Persónuvernd mun ekki skila af sér niðurstöðu um athugun á samskiptum Gísla Freys Valdórssonar, þáverandi aðstoðarmanns innanríkisráðherra, og Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur, þáverandi lögreglustjóra á Suðurnesjum, í aðdraganda lekamálsins svokallaða. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er athugunin á lokastigi en niðurstaða mun ekki liggja fyrir fyrr en stjórn Persónuverndar hefur afgreitt hana af stjórnarfundi. Þeir eru haldnir mánaðarlega um mánaðamót. Persónuvernd fór fram á að Sigríður skýrði hvernig gagnaöryggi var tryggt þegar hún sendi Gísla greinargerð um hælisleitandann Tony Omos sem síðan rataði í fjölmiðla. Hún hefur þegar sent Persónuvernd skýringar sínar. Gísli hefur einnig sent sínar skýringar til Persónuverndar. Það var í nóvember árið 2013 sem Sigríður Björk sendi Gísla greinargerðina í tölvupósti. Persónuvernd ákvað að hefja athugun á málinu og fór fram á afhendingu allra gagna sem því tengdust. Ganga á úr skugga um að sending Sigríðar brjóti ekki í bága við lög. Í þeim gagnapakka sem Sigríður afhenti Persónuvernd var greinargerðin meðal gagna, en ekki tölvupósturinn. Stofnunin óskaði eftir að pósturinn yrði afhentur sem Sigríður sagðist í yfirlýsingu ætla að gera.
Lekamálið Mest lesið Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Erlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Innlent Sundhnúksgígaröðin að verða búin Innlent Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Innlent Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Innlent Ráku háttsettan herforingja sem sakaður var um lygar Erlent Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Innlent Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Innlent „Þetta var mjög skrýtin stemning“ Erlent Fleiri fréttir Kapphlaup við tímann í Karphúsinu og eggjaskortur í aðdraganda jóla Í símanum undir stýri og bíllinn mikið skemmdur Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Biskup fagnar hækkun sóknargjalda Sundhnúksgígaröðin að verða búin Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Breyting á eldgosinu og stór dagur í Karphúsinu Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Minni virkni í miðgígnum Vextir og kosningar í Sprengisandi Réttindalausir stútar á ferðinni Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Ók á ljósastaur við Grensásveg Eldur kviknaði í bíl í Mosfellsbæ Læknar fara þokkalega bjartsýnir inn í morgundaginn Viðreisn stærst samkvæmt nýrri kosningaspá en mjótt á munum Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt til niðurskurð á hverju ári Hefur gefið Landgræðslunni 26 milljónir króna í formi fræja Mikilvægt að Bláa lónið geti opnað sem fyrst Hvetja íbúa Suðurnesja til að spara heita vatnið Varnaraðgerðir í Svartsengi og umdeild yfirhalning hjá Jaguar Ísland virðir handtökuskipan á hendur Netanjahú Fjölmiðlabann í kjaradeilu kennara Hildur hnýtir í Sigurð og sakar hann um ýkjur Straumar valda álagi á varnargarða og staðan viðkvæm Byggt og byggt á Suðurlandi og það þarf að byggja enn meira KÍ segir ummæli Ingu Rúnar „rannsóknarefni“ „Við gerum aldrei neitt nema með fullu samþykki“ Sjá meira