Skoðun

Barack og Hillary

Kristín Þorsteinsdóttir skrifar
Síðast þegar demókratar völdu forsetaefni var mörgu frjálslyndu flokksfólki vandi á höndum. Valið stóð milli tveggja öflugra frambjóðenda, sem hvor um sig myndi marka tímamót, næðu þeir kjöri. Þeldökkur karl atti kappi við konu. Fyrirrennararnir á forsetastóli voru allir hvítir karlar. Obama vann eftir hatramma baráttu og varð forseti. Clinton gerir nú aðra atlögu að forsetastólnum.

Sitt sýnist hverjum um frammistöðu Obama þegar sígur á seinni hluta ferilsins. Almennt þótti hann of leiðitamur ríkjandi hagsmunaöflum og frekar daufur í stórum málum á fyrra kjörtímabilinu. Það sem af er því síðara hefur hann verið heldur líflegri. Hann fær stóran plús fyrir Kúbu. Erfitt er að spá um hvernig framtíðin mun meta feril hans.

En skiptir uppruninn máli? Hefur sambúð kynþátta batnað á valdatíma forseta sem er afrískur að hálfu? Ítrekaðar útistöður lögreglu við þeldökka Bandaríkjamenn telja margir vísbendingu um afturför. Mikill meirihluti þeldökkra telur að á þá halli í réttarkerfinu almennt. Þeir fái þyngri dóma og verri meðferð í troðfullum fangelsum. Obama hafi engu breytt. Sama eigi við á fjölmörgum öðrum sviðum.

Því er haldið fram að hálfafrískur forseti hafi orðið einhvers konar syndakvittun – fólk telji sig hafa gert upp við ljóta fortíð með því að treysta þeldökkum manni fyrir Hvíta húsinu. En það sé í raun lítil fórn. Embætti forseta skipti æ minna máli því stjórnmálavaldið sé ofurselt hagsmunaklíkum, sem öllu ráði í krafti peninga.

Hvað sem því líður segja stuðningsmenn Obama að hann sé að taka til hendinni. Sáttargjörð vegna misréttis allt frá tímum þrælahaldsins sé í vinnslu – táknræn tilraun til að gera upp við söguna. Greinilega láti þeldökkir meira í sér heyra en áður. Það skýri athyglina, sem endurteknar misgjörðir lögreglu fá. Athyglin sýni framför, sem ekki sé sett í rétt samhengi í fréttum. Áður hafi lítið verið fjallað um slíkt.

Verði Hillary Clinton fyrir valinu mun arfleifð Obama í kynþáttamálum skipta miklu máli. Takist andstæðingi hennar í forsetaslag að sannfæra kjósendur um að í sambúð kynþátta hafi ekkert þokast á tímum Obama, mun það yfirfært á hennar baráttu. Hvers vegna ætti konu þá að takast betur í jafnréttismálum?

Clinton og Obama eru samherjar, sem róa á sömu atkvæðamið í eigin flokki. Báðum er talið til tekna að hún gerðist utanríkisráðherra í hans ríkisstjórn eftir að hafa beðið lægri hlut í erfiðum slag. Hún þótti sýna honum hollustu. Hann þótti sýna henni traust. Það verður því vandratað einstigi fyrir hana að stilla af fjarlægðina frá Obama. Meint mistök hans geta orðið fótakefli hennar. Meintir sigrar hans geta orðið ávinningur hennar.

Það hallar á konur í Bandaríkjunum. Þær fá þriðjungi lægri laun en karlar. Þar er verk að vinna eins og í kynþáttamálum. Tvöföld ósk demókrata um sögulegar breytingar verður uppfyllt, ef hún verður eftirmaður hans. Rætist óskin mun sagan leiða í ljós hvort kyn eða hörundslitur Bandaríkjaforseta skipta miklu í hrópandi réttlætismálum.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×