Skoðun

Hlutlausir áhorfendur eigin verka

Kolbeinn Óttarsson Proppé skrifar
Merkilega lítið fór fyrir Kristjáni Þór Júlíussyni, ráðherra heilbrigðismála, í aðdraganda lagasetningar á verkföll Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og aðildarfélaga BHM. Svo lítið að hann flutti ekki einu sinni frumvarpið, heldur kollegi hans í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu. Það er merkilegt að metnaðargjarn stjórnmálamaður skuli láta setja sig jafn freklega til hliðar og Kristján Þór gerði í þessu máli, sem ber annaðhvort vott um yfirnáttúrulega auðmýkt eða tilhneigingu til að skorast undan ábyrgð.

Skýrsla landlæknis um stöðuna er grundvallarplaggið sem liggur undir röksemdum ríkisstjórnarinnar fyrir lagasetningunni og á máli ráðherra og stjórnarliða má ljóst vera að það er fyrst og fremst hagur sjúklinga sem þeir segjast bera fyrir brjósti. Hvernig stendur þá á því að ráðherra þeirra málaflokks stendur ekki fyrir aðgerðum sem munu hafa bein áhrif á hans eigin málaflokk?

Kristján Þór var spurður út í það á Alþingi í gær hvernig hann hygðist bregðast við þeirri grafalvarlegu stöðu að fjölmargir hjúkrunarfræðingar hafa sagt upp og æ fleiri boðað uppsagnir, að yfirmenn heilbrigðisstofnana segja hrun yfirvofandi í íslenska heilbrigðiskerfinu.

„Þetta er sá veruleiki sem stofnanir okkar í kerfinu standa frammi fyrir,“ sagði ráðherra, „með því er ég á engan hátt að vísa allri ábyrgð á þessari stöðu yfir til stofnana.“ Nei, ekki að fullu segir ráðherra, sem er þá að viðurkenna að hann geri það að einhverju leyti. Æðsti yfirmaður heilbrigðiskerfisins ætti kannski frekar að tala sem ráðherra í ríkisstjórn allrar þjóðarinnar, tala um vanda heilbrigðiskerfisins sem vanda okkar allra, ekki einhverra stofnana sem hægt er að gera embættismenn ábyrga fyrir.

Þegar Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata, ræddi fjárveitingar til heilbrigðismála í gær, hvort þær væru nægar, hvort þyrfti að bæta í, kallaði Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra úr sæti sínu að það væri Alþingi sem færi með fjárlagavaldið. Þetta er athyglisverð yfirlýsing frá manninum sem í raun fer með samningsumboð við alla ríkisstarfsmenn, en framselur nefnd það umboð.

Hvað átti fjármálaráðherra við með framíkallinu? Er hann að biðla til Alþingis um að fólk þar taki sig nú til og semji við hjúkrunarfræðinga? Leysi vandann í heilbrigðiskerfinu? Hefði ekki verið nær að hann og sessunautur hans í þingsal, Kristján Þór Júlíusson, ráðherra heilbrigðismála, ræddu þau mál, frekar en að hrópa að þingmanni Pírata að hann og félagar hans hafi fjárveitingavaldið?

Lagasetning sem afnemur verkfallsrétt er grafalvarlegt mál. Að reyna að skjóta sér undan ábyrgðinni á afleiðingum hennar er ekki síður alvarlegt mál. Forsætisráðherra sá sér ekki einu sinni fært að vera viðstaddur atkvæðagreiðslu um málið.



Ráðherrar í ríkisstjórn Íslands geta ekki látið eins og þeir séu hlutlausir áhorfendur. Þeir verða að taka ábyrgð á gjörðum sínum. Ef það vantar fjármuni í heilbrigðiskerfið er það á ábyrgð ráðherranna. Ef starfsfólk ríkisins segir upp í hrönnum vegna óánægju er það á ábyrgð ráðherranna. Ef heilbrigðiskerfið ónýtist er það á ábyrgð ráðherranna.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×