Skoðun

Aur fyrir aur

Eva H. Baldursdóttir skrifar
Miðborgin iðar af mannlífi sem aldrei fyrr. Ferðamenn frá öllum þjóðum í ólíkum afbrigðum af flíspeysum glæða borgina lit og fyrir tilstilli þeirra er fjölbreytni borgarlífsins meiri. Aldrei hafa fleiri veitingastaðir og öldurhús né menningartengdir viðburðir verið í Reykjavík. Öll njótum við góðs af því og hin aukna fjölbreytni myndi vart þrífast ef ekki væri fyrir ferðamennina. Stöku lundabúð angrar mig því ekki enda skila ferðamenn enn fremur mestum gjaldeyristekjum í ríkissjóð núorðið.

Um milljón ferðamanna sótti landið heim á árinu 2014 og ekkert lát er á aukningunni. Reykjavík er stærsti ferðamannastaður landsins og meirihluti ferðamanna hefur þar viðkomu. Aukinn fjöldi kallar á aukna þjónustu við almennan rekstur svo sem við þrif og umhirðu borgarinnar, og reynir því á innviðina. Þá rekur Reykjavík ýmsa afþreyingu sem er niðurgreidd af íbúum, t.a.m. söfn og sundlaugar og styrkir aðra ríflega. Borgin hefur enn fremur ráðist í ýmsa opinbera fjárfestingu í menningartengdri ferðaþjónustu sem hefur eflt borgina sem viðkomustað og styrkt stoðir ferðaþjónustu. Á ferðalögum erlendis er mér almennt gert að greiða fyrir allt sem ég geri og skoða, og er það ekkert tiltökumál. Í mörgum borgum er greiddur sérstakur skattur, gistináttagjald, sem rennur til sveitarfélagsins og er innheimt á hótelum og varið til uppbyggingar ferðaþjónustu. Sambærileg gjaldtaka er hér á landi, en gjaldið rennur í ríkissjóð og er mjög lágt í erlendum samanburði aðeins 100 kr. fyrir gistieiningu.

Slíkt gistináttagjald á að renna beint til sveitarfélaganna líkt og víða erlendis. Þá ber að hækka gistináttagjaldið og eyrnamerkja uppbyggingu í ferðaþjónustu, einkum þar sem virðisaukaskattur er í lægra þrepi. Þegar frumvarp um gistináttagjald var samþykkt árið 2011 átti það að skila rúmum 200 m.kr. til uppbyggingar á ferðamannastöðum. Ljóst er að sú fjárhæð er mjög lág miðað við umfang vandans. Kannski er ekki sami fnykur af vanda Reykjavíkur og við blasir þegar ferðamenn létta af sér á ýmsum stöðum vítt og breitt um landið, en eðlilegt er að ferðamenn standi undir þeirri þjónustu sem þeir nýta, á sama hátt og við gerum sem ferðamenn erlendis. Gistináttagjald til sveitarfélaga á grundvelli nálægðarsjónarmiða er skynsamleg leið, á sér erlenda skírskotun og tryggir sveitarfélögunum aur fyrir aur, vegna aukinnar þjónustu við ferðamannafjöldann. Um gjaldið ætti ekki að ríkja ágreiningur, ef við erum sammála um það grundvallaratriði að menn borgi fyrir þá þjónustu sem þeir nýta.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×