Skoðun

Stóra myndin

Almar Guðmundsson skrifar

Tæpur helmingur af útflutningsverðmætum vöru og þjónustu frá Íslandi á rætur í hinum fjölmörgu greinum iðnaðarins. Greinin veitir tugþúsundum manna vinnu og er grundvallaruppspretta verðmætasköpunar.

Velmegun, aukin framleiðni og bætt lífskjör eru þannig nátengd þróun og stöðu iðnaðarins sem aftur ræðst af starfsskilyrðum og þeim meginstraumum sem einkenna samfélagið á hverjum tíma. Margir slíkir kraftar munu móta nánustu framtíð og skipulag efnahagsstarfseminnar þarf að taka mið af því.

Loftslag fer hlýnandi og minni losun gróðurhúsalofttegunda, betri umgengni við umhverfið og bætt orkunýting er áskorun sem við verðum að takast á við. Iðnaðurinn er þar í lykilhlutverki – tilbúinn með hugmyndir og lausnir.

Við erum tiltölulega ung þjóð en erum að eldast. Með tímanum þurfa hlutfallslega færri vinnandi að standa undir verðmætasköpuninni. Þessi þróun er sérstök áskorun fyrir iðnaðinn þar sem fólk með iðnmenntun eldist mun hraðar. Það skýrist af óviðunandi ásókn í verk- og tækninám jafnvel þótt gnótt tækifæra bíði fólks með þessa hæfni.

Á næstu áratugum mun öldruðum fjölga hratt og á okkur hvílir sú skylda að sinna þeim vel en líka að vera sveigjanleg og bjóða þeim að vinna lengur sem það vilja og geta. Öldrun þjóðarinnar kallar á nýjar lausnir og atvinnulífið þarf að vera í forystu við að bjóða upp á hagkvæm úrræði – betri lausnir fyrir minna fé.

Við erum stödd í einni mestu tæknibyltingu sögunnar. Þótt efnahagslífið á Íslandi hafi lengst af verið drifið áfram af nýtingu náttúruauðlinda munu tæknibreytingar og framfarir skipta mestu í náinni framtíð.

Þau samfélög sem best ná að hagnýta sér tækni og þróa nýja munu skara fram úr. Ísland er í harðri samkeppni um að laða til sín og halda í mannauðsfreka starfsemi. Þótt skilyrði fyrirtækja til rannsóknar og þróunar hafi batnað umtalsvert á liðnum árum vantar mikið upp á að við stöndum keppinautum okkar jafnfætis.

Þetta er stóra myndin sem blasir við okkur. Á Iðnþingi 10. mars nk. leitum við svara við því hvernig atvinnulífið bregst við þessum vandasömu áskorunum og nýtir tækifærin sem í þeim felast. Við þurfum að vinna að mikilvægustu verkefnunum til að ná árangri samfélaginu öllu til heilla. Öflugur iðnaður skapar gott líf fyrir einstaklinga, fyrirtæki og samfélag.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×