Skoðun

Thank you, goodbye

Kristín Þorsteinsdóttir skrifar
Stóru tíðindin af ársfundi Seðlabankans voru yfirlýsing Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra um afnám hafta síðar á árinu.

Yfirlýsingunni fylgdi engin útfærsla, önnur en sú að sérstakar varúðarreglur myndu leysa fjármagnshöftin af hólmi. Þannig ætti að girða fyrir að hér skapaðist sams konar ástand og fyrir 2008, sem endaði eins og allir muna með frjálsu falli krónunnar, gjaldeyrishöftum og algeru hruni efnahagslífsins.

Það eru góð tíðindi að fjármálaráðherra telji okkur geta aflétt fjármagnshöftunum.

Við skulum ekki gleyma að þau setja umtalsverðar skorður á líf venjulegs fólks og fyrirtækja í landinu. Takmarkanir á úttektum á erlendum gjaldeyri vegna utanferða snerta fjölskyldur á leið í sólarfrí. Bann við fjárfestingum í erlendum félögum eða lánveitingum milli landa koma við kaunin á atvinnulífinu, og tilvist gjaldeyrishafta fælir frá erlenda fjárfestingu.

Síðast en ekki síst þá loka höftin lífeyrissjóðina inni á Íslandi, og ýta þannig undir bólumyndun bæði á hlutabréfa- og fasteignamarkaði. Lífeyrissjóðsfélagar og hagkerfið í heild hagnast á því að liðkað sé fyrir fjárfestingum sjóðanna, og annarra fjársterkra aðila, í útlöndum.

Því má segja að það sé lífsspursmál fyrir heilbrigt hagkerfi til lengri tíma að afnema höftin. En það þarf að fara að öllu með gát. Hér má ekki skapast ástand þar sem peningar leita út í of miklum mæli með tilheyrandi þrýstingi á gjaldmiðilinn.

Passa þarf að halda jafnvægi. Krónan hefur þegar styrkst talsvert síðustu mánuði, og ekki er gott að sjá fyrir áhrif áframhaldandi styrkingar á ferðamannastrauminn. Það er ólíklegt að ferðamönnum fjölgi áfram um fjórðung á hverju ári ef gjaldmiðilinn styrkist til muna.

Núverandi ríkisstjórn, í góðu samstarfi við Seðlabankann, hefur haldið vel á spöðunum í efnahagsmálum. Þar hafa utanaðkomandi aðstæður vissulega hjálpað til, svo sem íslenska ferðamannavorið og fiskveiðarnar. Útkoman í samningum ríkisins við kröfuhafa spilar þó stærstu rulluna. Ísland er nú í hópi þeirra ríkja veraldar, sem búa við minnsta skuldabyrði, sé miðað við hlutfall af landsframleiðslu. Það er af sem áður var.

Í þessu samhengi eru dylgjur á Alþingi um að forsætisráðherra hafi leikið tveim skjöldum í þessum viðræðum í besta falli hjákátlegar, og í versta falli sjúkdómseinkenni á fárveikri pólitískri umræðu.

Fjármálaráðherra lauk ræðu sinni með orðunum „Thank you, and goodbye“, og vísaði í lausn mála gagnvart erlendu kröfuhöfunum. Verkinu er hins vegar ekki lokið. Nú þarf skynsamlega útfærslu á afnámi gjaldeyrishaftanna. Ef rétt er haldið á spöðunum gætu skilnaðarorðin til Bjarna, ef til kæmi að hann léti af embætti fjármálaráðherra við næstu kosningar, orðið:

„Thank you, goodbye and well done.“

Greinin/fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 19. mars.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×