Skoðun

Lindu Péturs­dóttur – á Bessa­staði!

Árni Stefán Árnason skrifar

Hugprúð, tignarleg, þægileg í samskiptum, gestrisin með hlýja og uppörvandi útgeislun. Þannig  kemur Linda Pétursdóttir fyrir.



Þekki ágætlega til Lindu okkar.  Býr yfir mikilli lífsreynslu, er vinsæl, hlaðin dygðum og þekkir íslenska sögu vel. Pólitískur þokki hennar kæmi okkur Íslendingum vel. Hlutleysi hennar í stjórnmálum er óumdeilt og mikilvægt. Atriði, sem vega þungt hjá flestum við val á nýjum þjóðhöfðingja.  Frambjóðandi á ekki að koma úr röðum gamalgróinna íslenskra stjórnmálaflokka. Það er ávísun mögulega mismunun þjóðfélagshópa.



Samkvæmt stjórnarskrá Íslands er forsetaembættið valdamikið þó margir kunni og hafi haldið hinu gagnstæða fram. Getur haft víðtæk áhrif, þjóð sinni til framdráttar hér og erlendis. Til þess þarf þarf þá mannkosti og innsæi, sem Linda hefur.   



Ákveði Linda, að gefa kost á sér, sem forsetaframbjóðandi , sem ég vona og komi embættið í kjölfarið í hennar hlut, veit ég,  að hún mun beita sér í samræmi við ákvæði stjórnarskrár lýðveldisins um forseta Íslands.  Ákvæði,  sem oft hafa verið vanmetin en í felast öflug tækifæri fyrir forsetann í þágu þjóðar sinnar.



Stjórnmál eru:  samfélagsmálaflóran í allri sinni mynd. Mál, sem varða einstaklinga með einum eða öðrum hætti. Ég tel Lindu vera góðan stjórnmálamann þó hún hafi lítið látið sig stjórnmál varða opinberlega til þessa í þeim skilningi, sem við höfum tamið okkur að leggja í það hugtak.  Stjórnmál fjalla um mannleg samskipti, félagslega  þátttöku á hinum ýmsum sviðum farsældar hinnar mannlegu flóru. Þar býr Linda að góðri reynslu enda getur hún litið sæl til baka á eigið líf og árangur.  Hún er því stjórnmálakona í orðsins fyllstu merkingu,  óháð stefnum og straumum ríkjandi íslenskrar flokkspólitíkar.  – Að vera óháður í þeim skilningi felast yfirburðir.



Í samskiptum er Linda líka jákvæð, glaðvær  og skilningsrík. Þegar við á er hún rökföst ,  alvarleg og einbeitt og getur staðið fast á sínu þegar sannfæring hennar býður henni það.  Hún veltir málum vandlega fyrir sér, er gagnrýnin á sig og samferðafólk en hikar ekki við, að skipta um skoðun,  hnýgi rök til slíks. Langflestir bera henni orðið afar vel.  Linda er vel að sér í þeim málum, sem skipta heill íslenskur þjóðarinnar máli. Hún þekkir líka vilja þjóðarinnar í þeim efnum og er sammála henni.



Af góðum ættum komin?  – Spurning, sem hefð er fyrir að spyrja á Íslandi, einkum af  eldri kynslóðar fólki, hinum lífsreyndustu.  Já,  foreldrar eru frú Ása Dagný Hólmgeirsdóttur húsfreyja og Pétur Olgeirsson skiptstjóri. Linda er alin upp í dreifbýli, fyrst á Húsavík síðan á Vopnafirði. Síðari búseta í þéttbýli og víða um heim. Hún þekkir því vel til þarfa vorra allra Íslendinga - og umhverfis vors.



Að mínu mati hefur enginn stigið fram til þessa,  sem stendur jafnfætis heimskonunni Lindu Pétursdóttur þegar kemur að vali á nýjum þjóðhöfðingja,  enda á brattann að sækja. Þjóðhöfðingi þarf að standa upp úr hvar og hvenær sem er.

Fyrir þjóð sína og land.  



Ég skora á þig kjósandi góður, að styðja Lindu Pétursdóttur í forsetakosningum 25. júní n.k.  taki hún þá ákvörðun, að bjóða fram þjónustu sína,  sem þjóðhöfðingi Íslendinga á Bessastöðum.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×