Skoðun

Skattaskjól

Árni Páll Árnason skrifar
Á Alþingi höfum við rætt hvernig hægt sé að takast á við þann vanda að efnaðir einstaklingar taka ekki þátt í að reka samfélagið og flytja tekjur sínar í skattaskjól. Það er sannarlega óeðlilegt að tekjur sem verða til á Íslandi í viðskiptum milli innlendra aðila séu fluttar til útlanda og þar með undan sameiginlegum sjóðum okkar. Þetta var viðvarandi vandamál fyrir hrun. Nú þarf að huga að framtíðinni.

Hver greiðir velferðina?

Þessi þróun er ekki einsdæmi á Íslandi, hún á sér hliðstæður um allan heim. Það hefur verið baráttumál jafnaðarmanna um alla Evrópu að skera upp herör gegn skattaskjólum. Ástæðan fyrir því er augljós. Ef fé þeirra best stæðu fer í skattaskjól leggjast byrðarnar af velferðarþjónustunni allar á millistéttina og hinir ríkustu sleppa við að leggja af mörkum til hinnar sameiginlegu þjónustu eins og þeir ættu að gera. Skattaskjól auka þannig muninn milli þjóðfélagshópa. Þeir ríku verða sífellt ríkari, því þeir eiga eignir sem skatt­leggjast með mildari hætti en í heimaríkinu og við hin sitjum uppi með sífellt hærri reikning fyrir þá velferðarþjónustu sem allir njóta – líka þeir ríku.

Það er nauðsynlegt að mínu viti að þau verðmæti sem verða til á Íslandi séu skattlögð á Íslandi og við verðum að búa okkur undir það að leikurinn haldi áfram ef létt verður á gjaldeyrishöftum. Hvernig ætlum við að koma í veg fyrir að þeir sem hagnast núna í samfélaginu með stórfelldum hætti fylgi fordæmi hinna frá því fyrir hrun og flytji arðinn allan til Tortóla?

Samfélagssáttmálinn

Alþjóðleg samvinna er besta leiðin til þess að tryggja gagnsæi, en við verðum samt að hugsa hvaða hvatir hafi legið að baki þegar þeir sem auðguðust á viðskiptum fluttu hagnaðinn úr landi. Hvað réð því? Það er spurningin sem við þurfum að leita svara við. Hvatarnir voru lægri skattar, en líka meiri leynd yfir fjárfestingum og viðskiptaháttum. Íslensk skattalög voru hert 2010 til að koma í veg fyrir skattalegt hagræði af svona tilfæringum.

Eftir stendur samt að sumir hafa haldið eignum í skattaskjólum leyndum og greiða því enga skatta af þeim. Við þurfum þess vegna að vera sífellt á varðbergi og tryggja að lög og alþjóðlegar reglur tryggi gagnsæi og réttlæti. Það er ekkert sem kallar á að gefa þeim sem hafa nýtt sér skattaskjólin einhvern forgang á almenna borgara.

Efnaðasta fólk landsins á ekki að eiga aðra og betri möguleika en við hin. Við eigum það til að taka þennan hóp út fyrir sviga og sætta okkur við að önnur lögmál gildi um hann, eins og til dæmis í gjaldeyrismálum þar sem fjármálaráðherra hefur lagt til að þeir ríku geti valið sér gjaldmiðil en við hin sitjum uppi með krónuna. Það á ekki að vera í boði. Það á eitt að gilda um alla í þessu efni sem öðru.

 

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 21. mars.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×