Skoðun

Byggjum upp saman

Katrín Jakobsdóttir skrifar
Þing kemur saman að loknu sumarleyfi í dag. Staðfest hefur verið að margboðaðar haustkosningar verða haldnar 29. október næstkomandi og þá fær þjóðin tækifæri til að velja á ný þingmenn til verka. Þinghaldið fram undan mun að einhverju leyti mótast af þeim málum sem þær kosningar munu snúast um.

Ríkisstjórn Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks forgangsraðaði frá fyrsta degi því að draga úr álögum á best stæðu hópa samfélagsins. Lækkun veiðigjalda á stórútgerðina var eitt af fyrstu verkum ríkisstjórnarinnar og haldið hefur verið áfram á sömu braut, ákveðið var að framlengja ekki auðlegðarskatt og orkuskatt en um leið var virðisaukaskattur á mat og menningu hækkaður.

Barnabætur og vaxtabætur hafa verið skertar, tillögur stjórnarandstöðunnar um að eldri borgarar og öryrkjar fengju kjarabætur við fjárlagagerð síðasta árs voru felldar. Þrengt hefur verið að aðgangi fullorðins fólks að menntakerfinu. Í ríkisfjármálaáætlun núverandi ríkisstjórnar er ekki gert ráð fyrir neinni raunverulegri uppbyggingu í framhaldsskólum og háskólum. Sama má segja um ýmsa innviði sem ekki hefur verið hlúð að sem skyldi en eru bráðnauðsynlegir bæði í samfélagslegu og efnahagslegu tilliti. Aukinn einkarekstur í heilbrigðiskerfinu er veruleiki eftir útboð á þremur nýjum heilsugæslustöðvum. Þingmenn og ráðherrar Sjálfstæðisflokksins tala fyrir einkarekstri vega og flugvalla.

Um allan heim er almenningur að andmæla stefnu á borð við þá sem núverandi ríkisstjórn rekur því að hún ýtir undir auðsöfnun fárra á kostnað hinna mörgu. Hún ýtir undir það að gæði í almannaeigu færist á hendur fárra, hvort sem um er að ræða fiskinn í sjónum, heilbrigðisþjónustu eða vegakerfi. Hún ýtir undir aukinn ójöfnuð á tímum þar sem við eigum einmitt að vera að byggja upp fyrir heildina eftir kreppuna 2008.

Kosningarnar fram undan munu snúast um þessa valkosti. Samfélög þar sem rekin eru öflug velferðarkerfi, þar sem hlúð er að viðkvæmustu hópum samfélagsins, þar sem stjórnvöld sinna því hlutverki sínu að beita skattkerfinu til að jafna tekjur fólks og þar sem almenningur tekur raunverulegan þátt í ákvarðanatöku eru þau samfélög sem vegnar best. Þannig samfélag viljum við í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði taka þátt í að byggja saman.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×