Skoðun

Ground control to Major Tom

Kristín Sigurgeirsdóttir skrifar
Ég fékk martröð í nótt. Ég var Major Tom í laginu Space Oddity hans David Bowie. Ég var í geimflaug sem var verið að fara að skjóta upp. Ég átti að fara út í geim að athuga hvort aðrar plánetur væru lífvænlegar fyrir okkur. Ef þessi jörð skyldi klikka. Þið vitið út af loftslagsbreytingunum og allt það. 

Take your protein pills and put your helmet on.“ Mér leist ekki á blikuna að þurfa að fara út í óvissuna. Ísland var að enda við að skrifa undir Parísarsamkomulagið. Yrði þá ekki bara allt í lagi? Hækkun hitastigs jarðar yrði undir 1,5° C og allt í góðu? Nei, það er víst ekki nóg að skrifa bara undir fallegar viljayfirlýsingar. Það þarf að grípa til að gerða til að ná árangri. Auðlindir jarðarinnar eru ekki ótæmandi og við getum ekki haldið áfram að haga okkur eins og við höfum gert. Loftgæði hafa minnkað, vatn er víða af skornum skammti og moldin eyðist hratt. Hafið heldur áfram að súrna og fyllast af plasti. Bæði stærri plastdrasli og litlum plastögnum sem ógna lífríkinu og komast inn í hringrás vistkerfisins. 

Commencing countdown, engines on.“  En hvaða aðgerða? 

Ten Ekki fara út í olíuleit og olíuvinnslu. Ok, lítið mál að hætta við það sem aldrei hefur verið byrjað á. 

Nine Lækka skatta á allt vistvænt til að stýra hegðun neytenda í vistvæna átt. 

Eight Efla innlenda matvælaframleiðslu með því að styrkja sjálfbæran landbúnað. 

Seven Draga úr matarsóun. 

Six“ Banna innflutning á  bílum sem nota jarðefnaeldsneyti og snarfjölga bílum og skipum sem nota endurnýjanlega orkugjafa. Leyfa ráðherrunum að sýna gott fordæmi þar með ráðherrabílunum sínum. 

Five Endurheimta votlendi, og röskuð vistkerfi í gegnum vistheimt og skóggræðslu. 

Four Styrkja umhverfisvitund og vistlæsi svo við getum öll sýnt ábyrgð í umhverfismálum og dregið úr mengun og auðlindasóun. 

Three Halda grænt bókhald, svo við vitum hvað við erum að losa af gróðurhúsalofttegundum, og endurnýja markmiðin reglulega miðað við framþróun. 

Two Tryggja góðar almenningssamgöngur og byggja upp innviði fyrir hjólandi og gangandi vegfarendur. 

One Nýting á auðlindum verði alltaf tekin með umhverfis- og náttúruverndargleraugum með sjálfbærni og fræðilega þekkingu að leiðarljósi. 

Liftoff Þetta og svo margt annað er hægt að gera. Það er ekki of seint að bregðast við. 

 I think my spaceship knows which way to go.“




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×