Skoðun

Þankabrot um aðskilnað stjórnmála og atvinnulífs

Friðrik Rafnsson skrifar
Enda þótt dægurþrasið á Alþingi geti stundum verið þreytandi fyrir okkur sem fylgjumst með því í gegnum fjölmiðla hef ég nokkrar efasemdir um það sem kallað er beint lýðræði og finnst sú umræða oft lykta af óttalegu lýðskrumi. Eflum heldur og styrkjum þingræðið sem mest, komum okkur inn í tuttugustu og fyrstu öldina með því að jafna atkvæðisréttinn, gerum þingmönnum kleift að rækta betur sambandið við kjósendur og stuðlum að því fulltrúar okkar á þinginu verði mun sjálfstæðari gagnvart ýmsum sérhagsmuna- og peningaöflum og nái betur að vinna að almannahag.

Þetta á raunar líka við um sveitarstjórnarstigið. Það hlýtur oft að vera erfitt fyrir kjörna fulltrúa í sveitarstjórnum að standast þrýsting umsvifamikilla atvinnurekenda, hvað þá að standa uppi í hárinu á þeim. Eflaust fara hagsmunir viðkomandi oft saman, en það er væntanlega ekki einhlítt og stundum stangast þeir á. Þá er spurning hvort almannahagsmunir eða hagsmunir viðkomandi fyrirtækis vegi þyngra. Alkunna er að þurftafrekir byggingaverktakar réðu því sem þeir vildu ráða í Reykjavík þegar Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur héldu um stjórnartaumana þar. Og hvor aðilinn ætli sé valdameiri í Vestmannaeyjum, útgerðarmenn þar eða bæjarfulltrúar? Eða á Hornafirði, í Fjarðabyggð eða á Akranesi? Og hvort ætli kaupfélagsstjóri Kaupfélags Skagfirðinga eða sveitarstjórinn þar hafi meira um málin þar að segja? Þetta er sú prófraun sem fulltrúalýðræðið þarf stöðugt að þreyta. Og á því prófi hafa ansi margir stjórnmálamenn kolfallið, því miður, og það án þess að þeim finnist það neitt tiltökumál.

Framlenging hagsmunaaðila

Verst er þó að horfa æ oftar upp á það þegar þingmenn og jafnvel ráðherrar eru nánast eins og framlenging tiltekinna fjársterkra hagsmunaaðila sem hafa sýnt þeim eða flokknum þeirra sérlega mikið örlæti rétt fyrir prófkjör og kosningar og ganga síðan erinda viðkomandi hagsmunaaðila á þinginu leynt og ljóst.

Til að girða alfarið fyrir þennan möguleika og verja frelsi kjörinna fulltrúa gagnvart hagsmunaaðilum hefur Björt framtíð ákveðið að taka ekki við neinum fjárframlögum frá lögaðilum fyrir þessar kosningar. Ekki eru tekin lán fyrir kosningabaráttunni, en flokkurinn á lögbundin framlög inni á bankareikningi og þau þurfa að duga.

Sú gamaldags og görótta blanda stjórnmála og atvinnulífs sem þjóðinni hefur verið boðið upp á um árabil grefur sífellt meira undan fulltrúalýðræðinu og er gróðrarstía spillingar eins og dæmin sanna. Það væri því mikið framfaraskref að snúa þessari öfugþróun við, auka gagnsæi á þessu sviði sem öðrum, eins og Björt framtíð berst fyrir, og að mínu mati væri heillavænlegast fyrir lýðræðið að stefna að fjárhagslegum aðskilnaði stjórnmála og atvinnulífs.

Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×