Skoðun

Hvers vegna að kjósa Bjarta framtíð?

Agnar H. Johnson skrifar
Björt framtíð er frjálslyndur flokkur sem lætur sig umhverfismál varða, er málsvari umbóta og gagnsæis, fjölbreytni og aukinna tækifæra.

Björt framtíð vill kerfisbreytingar, enda eini stjórnmálaflokkurinn sem greiddi atkvæði gegn búvörulögunum haustið 2016, svo dæmi sé tekið. Engu að síður telur Björt framtíð að íslenskur landbúnaður og framþróun hans eigi að njóta stuðnings ríkisins.

Björt framtíð vill efla heilbrigðiskerfið og skapa góð starfsskilyrði svo gæði þjónustu sé ávallt eins og best verði á kosið og með sem skilvirkustum hætti. Forvarnir og heilsuefling eru einnig mikilvægir þættir sem huga ber að þegar kemur að almennri lýðheilsu.

Björt framtíð vill efla menntakerfið í takt við nýja tíma svo fólk geti vaxið og tekið þátt í nýsköpun á öllum sviðum samfélagsins. Efla þarf rannsóknir og byggja upp skapandi greinar. Menntað ungt fólk er jú hin raunverulega stóriðja framtíðarinnar!

Leyfum fólki að flytja til okkar, njóta sín og gerast nýir Íslendingar. Fáum einnig unga fólkið heim aftur. Treystum fólki til að skapa sín eigin tækifæri í opnu og alþjóðlegu samfélagi. Eflum menningarlífið og gerum Ísland að skemmtilegri stað til að búa á, uppfullum af tækifærum.

Björt framtíð vill taka vel á móti fólki sem leit­ar ­vernd­ar utan síns heima­lands vegna stríðsátaka. Horfa ber til þess mannauðs sem í flótta­mönn­um býr og þess virðis sem þeir geta fært ís­lensku sam­fé­lagi. Mót­taka flótta­fólks verður að byggja á mannúðarsjón­ar­miðum, fagmennsku og skil­virkni.

Náttúra Íslands er viðkvæm auðlind sem ferðamenn vilja njóta. Lofum ferðaþjónustunni að vaxa og dafna undir skilyrðum náttúruverndar. Eflum innviði henni tengdri, t.d. vegakerfið, aðgengi, öryggismál og eftirlit. Fjármögnun ríkis og sveitarfélaga vegna ferðamála þarf að byggja í auknum mæli á tekjuöflun af ferðamönnum með sem skilvirkustum hætti án viðbótar yfirbyggingar.

Orkan, náttúran og fiskurinn í sjónum eru Íslendingum gjöful. Okkur ber að nýta auðlindir landsins með sjálfbærum hætti fyrir komandi kynslóðir. Við eigum að leita allra leiða til að auka virðisaukann sem við fáum af nýtingu auðlindanna með hliðsjón af umhverfisvernd.

Björt framtíð vill hækka auðlindagjöld til samræmis við verðmæti og afrakstur hverju sinni. Til að sanngjarnt afgjald renni til sameiginlegra sjóða þjóðarinnar þarf að taka uppboð aflaheimilda upp í skrefum samhliða núverandi veiðigjaldakerfi. Stuðla ber að eðlilegri samkeppni um aflaheimildir eins og kostur er með hliðsjón af rekstraröryggi útgerðar og fiskvinnslu.

Björt framtíð telur að langtímahagsmunir þjóðarinnar verði betur tryggðir innan Evrópusambandsins en utan. Hins vegar er það þjóðarinnar að skera endanlega úr um það. For­senda þess að vextir lækki hér og spari þjóðinni árlega gríðarlegar fjárhæðir er upptaka öflugs gjald­mið­ils sem gjaldgengur er í okkar helstu viðskiptalöndum. Þannig getum við stuðlað að efnahagslegum stöðugleika.

Sjá má heildarstefnu og sýn Bjartrar framtíðar á vefsíðunni:bjortframtid.is/politik/framtidarsynin

Leggjum áherslu á gagnsæi, langtímahagsmuni og framtíðarsýn. Meiri Bjarta framtíð - minna fúsk!

Agnar H. Johnson er framkvæmdastjóri og á sæti á lista Bjartrar framtíðar í SV-kjördæmi.

 




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×