Skandinavar og Bretar skyldari landnámsfólki en Íslendingar Kristján Már Unnarsson skrifar 5. desember 2016 18:45
Núlifandi Skandinavar og Bretar eru skyldari landnámsmönnum Íslands heldur en núlifandi Íslendingar, samkvæmt rannsókn Íslenskrar erfðagreiningar. Ástæðan er talin sú að endurteknar hörmungar undanfarin ellefuhundruð ár hafi breytt íslensku þjóðinni. Um þetta var fjallað í fréttum Stöðvar 2 og þættinum Landnemarnir í kvöld. „Á einhvern undarlegan hátt þá virðast núlifandi íbúar Skandinavíu og Bretlandseyja vera skyldari landnámsfólkinu okkar heldur en við erum sjálf,“ segir Agnar Helgason, líffræðilegur mannfræðingur hjá Íslenskri erfðagreiningu. Skýringarnar eru taldar endurteknar hörmungar á Íslandi í gegnum aldirnar, eins og eldgos, hungursneyðar og drepsóttir. „Við erum með svartadauða. Við erum með stórubólu í byrjun átjándu aldar sem drepur 25 prósent af þjóðinni. Við erum með móðuharðindin, sem drepa kannski 20 prósent af þjóðinni. Og hvað gerist þá? Það glatast svo mikið af erfðaefni. Það eru svo margir sem eignast ekki börn og þá skilast þeirra erfðaefni ekki til næstu kynslóðar. Þannig að það sem hefur gerst á þessum 1100 árum er að það er mjög mikið af erfðaefni, sem landnámsfólkið kom með sér, sem hefur ekki skilað sér alla leið til nútíðar. En í Bretlandi og Skandinavíu hefur erfðaefnið varðveist miklu betur,“ segir Agnar. Emma Eyþórsdóttir, erfðafræðingur við Landbúnaðarháskóla Íslands: „Þeir sterkustu lifa af, ef áföll verða.“Stöð 2/Friðrik Þór Halldórsson.Og þetta gerðist einnig hjá húsdýrum Íslendinga. Þannig dóu landnámssvínin út á 15. öld vegna kólnandi veðurfars, að sögn Emmu Eyþórsdóttur, erfðafræðings við Landbúnaðarháskóla Íslands. „Svínin voru í útigangi og það kólnaði. Þau þoldu ekki loftslagið þannig að þau eru bara glötuð. Móðuharðindin voru eitt versta áfallið. „Stofnarnir í rauninni hrynja, bæði nautgripir, sauðfé og hross, - og geitur örugglega líka,“ segir Emma. „Þetta hefur hugsanlega mótað eitthvað. Það er alltaf sagt að þeir sterkustu lifa af, ef áföll verða.“
Landnemarnir Tengdar fréttir Steinkross gæti verið elsti grafreitur Íslands Steinkross var miðja sólúrs og goðfræðilegrar heimsmyndar á landnámsöld, samkvæmt kenningum Einars Pálssonar. 28. nóvember 2016 22:45 Keltnesk áhrif vanmetin í menningu Íslendinga Keltnesk áhrif í íslenskri menningu eru mun meiri en menn hafa séð eða viljað vera láta, eins og í örnefnum og tungumálinu. 22. febrúar 2016 22:00 Er íslensk þjóð afurð grimmra stúlknarána? Ísland var numið af norskum strákum sem fóru til Bretlands og náðu sér í konur, segir forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar. 21. febrúar 2016 01:30 Landnemarnir sigla áfram til Grænlands og Vínlands Landnám Íslendinga á Grænlandi með siglingu Eiríks rauða árið 985 og dularfullt hvarf norrænu þjóðarinnar um 500 árum síðar er meðal þess fjallað verður um í þáttaröðinni "Landnemarnir“ sem heldur áfram á Stöð 2 í vetur. 13. nóvember 2016 10:15 Íslenskur landnámshöfðingi reisti stærsta víkingaskálann Stærsti víkingaskáli sem fundist hefur á Norðurlöndum er nú talinn hafa verið reistur af einum af landnámsmönnum Íslands. 14. nóvember 2016 18:47 Voru skógarnir svona veglegir við landnám? "Ég er sannfærður um það að allt láglendi landsins hafi litið svona út eins og þessi mynd sýnir,” segir Sveinn Runólfsson, fyrrverandi landgræðslustjóri. 20. nóvember 2016 12:00 Telja Auði djúpúðgu ættaða frá Kvam við Aurlandsfjörð Þess vegna hafi hún valið sama heiti á landnámsbæ sinn á Íslandi. 8. febrúar 2016 19:15 Maður Auðar var konungur og þrælakaupmaður Auður djúpúðga er frægasta landnámskona Íslands. 5. febrúar 2016 14:59 "Þetta eru mestu fornminjar á Íslandi“ Feiknarleg mannvirki, sem komið er í ljós að eru ævaforn, hafa verið að uppgötvast víða á Norðurlandi. 4. desember 2016 08:15 Norðmenn segja Ingólf úr Hrífudal Ingólfur Arnarson, fyrsti landnámsmaður Íslands, kom frá Dalsfirði á Fjölum, samkvæmt Landnámabók. 29. janúar 2016 15:00 Forn varða talin hluti af launspeki landnámsins Stór varða í útjaðri Reykjavíkur sögð hluti af útmældu kerfi sem tengdist árstíðaskiptum og gangi himintungla. 27. nóvember 2016 08:30 Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Erlent Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Innlent Sundhnúksgígaröðin að verða búin Innlent Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Innlent Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Innlent Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Innlent Ráku háttsettan herforingja sem sakaður var um lygar Erlent Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Innlent „Þetta var mjög skrýtin stemning“ Erlent Fleiri fréttir Kapphlaup við tímann í Karphúsinu og eggjaskortur í aðdraganda jóla Í símanum undir stýri og bíllinn mikið skemmdur Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Biskup fagnar hækkun sóknargjalda Sundhnúksgígaröðin að verða búin Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Breyting á eldgosinu og stór dagur í Karphúsinu Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Minni virkni í miðgígnum Vextir og kosningar í Sprengisandi Réttindalausir stútar á ferðinni Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Ók á ljósastaur við Grensásveg Eldur kviknaði í bíl í Mosfellsbæ Læknar fara þokkalega bjartsýnir inn í morgundaginn Viðreisn stærst samkvæmt nýrri kosningaspá en mjótt á munum Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt til niðurskurð á hverju ári Hefur gefið Landgræðslunni 26 milljónir króna í formi fræja Mikilvægt að Bláa lónið geti opnað sem fyrst Hvetja íbúa Suðurnesja til að spara heita vatnið Varnaraðgerðir í Svartsengi og umdeild yfirhalning hjá Jaguar Ísland virðir handtökuskipan á hendur Netanjahú Fjölmiðlabann í kjaradeilu kennara Hildur hnýtir í Sigurð og sakar hann um ýkjur Straumar valda álagi á varnargarða og staðan viðkvæm Byggt og byggt á Suðurlandi og það þarf að byggja enn meira KÍ segir ummæli Ingu Rúnar „rannsóknarefni“ „Við gerum aldrei neitt nema með fullu samþykki“ Sjá meira
Steinkross gæti verið elsti grafreitur Íslands Steinkross var miðja sólúrs og goðfræðilegrar heimsmyndar á landnámsöld, samkvæmt kenningum Einars Pálssonar. 28. nóvember 2016 22:45
Keltnesk áhrif vanmetin í menningu Íslendinga Keltnesk áhrif í íslenskri menningu eru mun meiri en menn hafa séð eða viljað vera láta, eins og í örnefnum og tungumálinu. 22. febrúar 2016 22:00
Er íslensk þjóð afurð grimmra stúlknarána? Ísland var numið af norskum strákum sem fóru til Bretlands og náðu sér í konur, segir forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar. 21. febrúar 2016 01:30
Landnemarnir sigla áfram til Grænlands og Vínlands Landnám Íslendinga á Grænlandi með siglingu Eiríks rauða árið 985 og dularfullt hvarf norrænu þjóðarinnar um 500 árum síðar er meðal þess fjallað verður um í þáttaröðinni "Landnemarnir“ sem heldur áfram á Stöð 2 í vetur. 13. nóvember 2016 10:15
Íslenskur landnámshöfðingi reisti stærsta víkingaskálann Stærsti víkingaskáli sem fundist hefur á Norðurlöndum er nú talinn hafa verið reistur af einum af landnámsmönnum Íslands. 14. nóvember 2016 18:47
Voru skógarnir svona veglegir við landnám? "Ég er sannfærður um það að allt láglendi landsins hafi litið svona út eins og þessi mynd sýnir,” segir Sveinn Runólfsson, fyrrverandi landgræðslustjóri. 20. nóvember 2016 12:00
Telja Auði djúpúðgu ættaða frá Kvam við Aurlandsfjörð Þess vegna hafi hún valið sama heiti á landnámsbæ sinn á Íslandi. 8. febrúar 2016 19:15
Maður Auðar var konungur og þrælakaupmaður Auður djúpúðga er frægasta landnámskona Íslands. 5. febrúar 2016 14:59
"Þetta eru mestu fornminjar á Íslandi“ Feiknarleg mannvirki, sem komið er í ljós að eru ævaforn, hafa verið að uppgötvast víða á Norðurlandi. 4. desember 2016 08:15
Norðmenn segja Ingólf úr Hrífudal Ingólfur Arnarson, fyrsti landnámsmaður Íslands, kom frá Dalsfirði á Fjölum, samkvæmt Landnámabók. 29. janúar 2016 15:00
Forn varða talin hluti af launspeki landnámsins Stór varða í útjaðri Reykjavíkur sögð hluti af útmældu kerfi sem tengdist árstíðaskiptum og gangi himintungla. 27. nóvember 2016 08:30