Skoðun

Borgarlína og aðrar samgöngulínur

Ó. Ingi Tómasson skrifar
Fjármagn til samgöngumála er og hefur verið af skornum skammti. Samkvæmt fjárlagafrumvarpi verður nýsamþykkt samgönguáætlun skorin niður um 13 milljarða og væntingar margra verða að engu. Umræðan um samgöngumál hér á höfuðborgarsvæðinu hefur að mestu snúist um fyrirhugaða Borgarlínu, minna hefur verið rætt um aðrar samgönguúrbætur s.s. bætt og betri samgöngumannvirki og því síður hefur verið rætt um aðrar og einfaldari leiðir til að draga úr umferðarhnútum á álagstímum.

Borgarlínan

Ein af meginforsendum svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins er Borgarlínan sem er hraðvagna- eða lestakerfi í gegnum alla meginása höfuðborgarsvæðisins, markmiðið er að notkun á almenningssamgöngum fari úr 4% árið 2016 í 12% árið 2040. Allar sveitarstjórnir á höfuðborgarsvæðinu styðja uppbyggingu almenningssamgangna enda þjóðhagslega hagkvæmt og ekki síður umhverfislega mikilvægt að minnka notkun einkabílsins eins og kostur er. Þó svo að markmið Borgarlínunnar náist og veruleg aukning verði á notkun almenningssamgangna má gera ráð fyrir áframhaldandi umferðarteppum á álagstímum. Helstu umferðaræðar höfuðborgarsvæðisins hafa ekki vaxið í takt við aukna umferð, skort hefur á pólitískan vilja hjá sveitarstjórnum á að þrýsta á úrbætur í samgöngumálum á höfuðborgarsvæðinu, áherslan hefur verið á eitthvað annað og því sitjum við föst í umferðinni, á morgnana og svo aftur síðdegis.

Einfalda og ódýra leiðin

Þar sem fyrirséð er að ekki verður til fjármagn í fjárfrekar framkvæmdir á helstu umferðarmannvirkjum og miklum fjármunum verður varið í almenningssamgöngur á næstu árum þarf að bregðast við vandanum sem við okkur blasir á álagstímum í umferðinni. Öll komumst við greiðlega á milli staða á milli kl. 08:30 og 16:00 og svo aftur frá kl. 17:30 – 07:30. Vandamálið í umferðinni eru tvær og hálf klst. Á álagstímum í umferðinni eru flestir ökumenn annað hvort opinberir starfsmenn eða nemendur, allir þessir ökumenn þurfa að vera mættir eitthvert á sama tíma, og þá helst miðsvæðis í Rvk.

Einfalda lausnin eða öllu heldur ódýra leiðin er að ríki, sveitarfélög og skólar taki höndum saman og skipuleggi vinnutíma starfsfólks og nemenda þannig að upphaf vinnudags sé á mismunandi tímum þannig að álagið á umferðina dreifist á morgnana og svo aftur seinni partinn. Það sem þarf til er að leggja réttu línuna með samtali og skipulagi, þannig mun sparast fé og dýrmætur tími.

 

Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×