Skoðun

Framtíðarsýn í ferðamálum

Katrín Jakobsdóttir skrifar
Ferðaþjónusta hefur á skömmum tíma orðið umfangsmesti atvinnuvegur landsins. Nú þegar skilar hún miklum verðmætum til samfélagsins og hún hefur skipt sköpum við endurreisn efnahagslífsins.

Vinstri græn lögðu fram ítarlega stefnu um framtíð ferðaþjónustu fyrir kosningar þar sem rauði þráðurinn var að greinin þyrfti að þróast með sjálfbærum hætti, í sátt við umhverfi, samfélag og efnahag. Áhersla var lögð á að vernda einstaka náttúru landsins og að uppfylla metnaðarfull loftslagsmarkmið. Hvort tveggja kallar á breytta hugsun en skapar líka sóknarfæri. Mikilvægt er að efla enn frekar menntun og rannsóknir innan ferðaþjónustunnar og að sjálfbærnihugsunin verði samþætt inn í alla stefnumótun. Því miður hefur umræða um málefni ferðaþjónustunnar nánast eingöngu snúist um gjaldtöku seinustu misserin. Umdeilt frumvarp um náttúrupassa steytti á skeri og síðan þá hefur ekki náðst sátt um hvaða leiðir sé best að fara til að greinin leggi meira af mörkum til samfélagsins í samræmi við þá nýtingu sem hún felur í sér á auðlindinni sem felst í ósnortinni náttúru.

Á sama tíma hefur skapast villtavestursástand þar sem landeigendur víða um land eru farnir að rukka fyrir aðgang að náttúruperlum, jafnvel þó að ítrekað hafi komið fram að slík gjaldtaka er lögum samkvæmt háð þröngum skilyrðum þar sem rekstraraðili viðkomandi náttúruverndarsvæðis þarf að hafa gert sérstakan samning við Umhverfisstofnun um rekstur svæðisins. Hins vegar hefur komið fram að ekki hafi verið brugðist sérstaklega við lokunum og gjaldtöku, jafnvel þó að lagaheimildir skorti.

Stefnuleysi hefur ríkt í þessum málum og tækifæri til að skapa sátt um uppbyggingu greinarinnar hafa farið forgörðum – til að mynda var tillaga um komugjöld felld við afgreiðslu síðustu fjárlaga. Nú segir nýr ráðherra ferðamála að landeigendur eigi að beita gjaldtöku ef þeir telji það stuðla að náttúruvernd sem bendir því miður ekki til þess að ný ríkisstjórn vilji tryggja almannaréttinn og leggja grunn að eðlilegri tekjuöflun sem geti nýst til uppbyggingar úr sameiginlegum sjóðum. Þessi mál þurfa alvöru umræðu á nýju þingi.

 

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×