Skoðun

Mismunun

Kristín Þorsteinsdóttir skrifar
Fjölmiðlanefnd hefur það lögbundna hlutverk að hafa eftirlit með fjölmiðlastarfsemi í landinu. Starfsmenn nefndarinnar leggja mikið á sig til að íslenskir fjölmiðlar fari eftir laganna bókstaf og vilja skiljanlega sinna sínu starfi af samviskusemi og elju.

Íslenskar sjónvarpsstöðvar verða að texta allt erlent efni með tilheyrandi kostnaði. Krafa er um að íþróttaviðburðum í beinni útsendingu sé lýst á íslensku. Sjónvarpsstöðvar mega ekki sýna efni bannað börnum nema á fyrirfram skilgreindum tímum og þurfa að merkja það sérstaklega. Þær mega auðvitað ekki – ekki frekar en prent-, útvarps- og netmiðlar – auglýsa áfengi. Skýrar reglur sem allir verða að fara eftir annars eiga þeir yfir höfði sér háar sektir frá Fjölmiðlanefnd og hótanir um lokun, ef um endurtekin brot er að ræða.

Fjölmiðlar á Íslandi búa við skýrt íþyngjandi regluverk. Ætla mætti að erlendir fjölmiðlar, sem vilja hasla sér völl á Íslandi, þyrftu að lúta sömu lögmálum. Sú er ekki raunin.

Á meðan 365 eyðir á annað hundrað milljóna í þýðingarkostnað á ári hverju, getur Netflix sýnt hvað sem er án íslensks texta, hvenær sem er. Á meðan 365 getur einungis sýnt bannað efni á ákveðnum tímum sólarhrings, getur Netflix haft slíkt á boðstólum hvenær sem er sólarhringsins. Sky News og Fox News geta sýnt áfengisauglýsingar hvenær sem er á sínum stöðvum fyrir íslenska áhorfendur. Sama gildir um erlend tímarit og innflutt blöð. Ef útgefandinn er erlendur má fylla blaðið af áfengisauglýsingum jafnvel þótt textinn sé á íslensku.

Engu er líkara en Fjölmiðlanefnd, sem er rekin fyrir íslenskt skattfé, hafi það helst að leiðarljósi að leggja stein í götu íslenskra einkamiðla í samkeppni þeirra við þá útlendu. Þeir fyrrnefndu þurfa að lúta íþyngjandi reglum sem ekki eiga við um hina. Við bætist heimild RÚV til að selja auglýsingar fyrir tvo milljarða króna á ári. Í rauninni er á ferð aðför ríkisvaldsins að einkareknum fjölmiðlum. Smátt og smátt er verið að grafa undan rekstrargrundvelli þeirra af óskiljanlegri festu.

Fjölmiðlanefnd og ríkisvald verða að láta eitt yfir alla ganga. Annaðhvort þarf að setja erlendum fjölmiðlum skýrari línur, eða að afnema reglurnar sem gera innlendum fjölmiðlum ókleift að berjast við þá erlendu á jafnréttisgrundvelli. Tryggja verður að erlendir fjölmiðlar njóti ekki lögverndaðs forskots á íslenska keppinauta. Reglur á okkar litla markaði eiga ekki að ráðast af heimilisfangi.

Íslenskir ljósvakamiðlar og aðrir íslenskir miðlar eru mikilvægir fyrir samfélagið og tungumálið okkar. Alþjóðleg samkeppni er staðreynd sem ekki verður breytt, og nokkuð sem framsýnt fólk fagnar. En við megum ekki láta erlendu miðlana valta yfir þá íslensku. Þannig tapast leikurinn og hvað verður þá um tungumálið og menningarverðmætin, sem íslenskum fjölmiðlum ber réttilega að standa vörð um?

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×