Skoðun

Full losun hafta er möguleg strax

Sigurður Hannesson skrifar
Sterk staða þjóðarbúsins og styrking krónunnar að undanförnu hefur skapað tækifæri til tafarlauss afnáms hafta. Trúverðug áætlun um losun fjármagnshafta hefur skilað miklum árangri. Erlend staða þjóðarbúsins hefur aldrei verið betri en nú og Ísland hefur áunnið sér traust að nýju á alþjóðavettvangi. Íslensk fyrirtæki, félög og einstaklingar geta nú fjárfest erlendis og lífeyrissjóðir hafa að mestu nýtt heimildir sínar til þess. Tvennt þurfti til að gera erlenda fjárfestingu mögulega; tryggja að uppgjör á slitabúum gömlu bankanna stefndu Íslandi ekki í voða og aflandskrónur færðust út úr hagkerfinu með skipulegum hætti. Bæði þessi verkefni voru leyst á síðasta ári og í framhaldinu hafa skapast aðstæður til að losa höftin að fullu.

Fjárfestingar á erlendum mörkuðum geta dregið úr efnahagsáhættu og eru því ekki aðeins skynsamlegar heldur nauðsynlegar fyrir lítið og opið hagkerfi. Fyrst og fremst hafa lífeyrissjóðir nýtt heimildir sínar til að fjárfesta erlendis en einstaklingar og fyrirtæki í minni mæli. Hátt vaxtastig á Íslandi þýðir að ávöxtun hérlendis er góð, fjármagn leitar frekar til landsins en frá því og krónan styrkist jafnt og þétt. Hvort tveggja freistar frekar en að fjárfesta erlendis en það getur breyst fljótt eins og dæmin sanna.

Málefnum slitabúanna tókst að ljúka án nokkurra eftirmála. Aflandskrónueigendur stóðu frammi fyrir skýrum valkostum. Annars vegar að selja aflandskrónur fyrir gjaldeyri með þátttöku í útboði eða binda þær til lengri tíma, þar til búið væri að losa um höft á aðra. Stjórnvöld hafa nú gefið í skyn að hleypa ætti aflandskrónueigendum með eignir sínar úr landi á þessu ári, þvert á þær áætlanir sem hafa skapað trúverðugleika fyrir land og þjóð. Með slíkri stefnubreytingu væru hagsmunir kröfuhafa teknir fram fyrir hagsmuni landsmanna. Hið gagnstæða á ávallt að vera í forgrunni enda er það frumskylda stjórnvalda að standa vörð um hagsmuni Íslands.

 

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×