Skoðun

Vísindin og sannlíki stjórnmálanna

Guðni Elísson skrifar
Um það leyti sem Donald Trump var kjörinn 45. forseti Bandaríkjanna átti alfræðiritið Conservapedia 10 ára afmæli. Conservapedia var stofnað af bandaríska íhaldsmanninum Andrew Schlafly í þeim tilgangi að vega upp á móti frjálslyndisslagsíðunni sem honum þótti vera á uppflettiritinu Wikipediu, en ýmislegt sem þar mátti finna gekk þvert á veruleikasýn hægri sinnaðra harðlínumanna. Conservapedia sérhæfir sig í miðlun „annars konar staðreynda“ (e. alternative facts), þar sem mynd íhaldsmanna af heiminum er staðfest í færslum sem hafa á sér fræðilegt yfirbragð. Þar má finna greinar þar sem dreginn er fram „efi“ um viðurkennda þekkingu á sviði þróunarfræða og loftslagsvísinda; meira að segja afstæðiskenning Einsteins virðist standa höllum fæti ef tekið er tillit til þeirra 50 mótraka sem sett eru fram gegn kenningunni. Þar má nefna ýmis kraftaverk Krists (mótrök 22) og sköpunarsöguna í Mósebók (mótrök 43). Þegar þetta er skrifað hafa netnotendur sótt sér „þekkingu“ á Conservapediu yfir 600 milljón sinnum.

Hættan sem stafar af íhaldsmönnum eins og Schlafly er fyrst og fremst sú að þeim nægir ekki að binda trúarsannfæringu sína við einkalífið, þeir krefjast þess að stjórnvaldsaðgerðir mótist af þeirra eigin heimssýn. Í þeim tilgangi hafa hægri sinnaðir harðlínumenn á Vesturlöndum nú um nokkurra áratuga skeið skapað umfangsmikil „þekkingarkerfi“ á sviði náttúru- og raunvísinda utan um stjórnmálaskoðanir sínar og viðhaldið þeim á markvissan hátt, t.d. með bóka- og tímaritaútgáfu. Þetta er m.a. gert með því að flytja þekkingarsköpunina úr háskólunum inn í hugveituna þar sem búið er til lokað tilvísanakerfi sem er í engum tengslum við raunveruleikann. Er því „fræðiefni“ svo teflt fram gegn ríkjandi sýn vísindamanna með góðum árangri því að pistlahöfundar, fréttastofur og lesendur miðla sannlíkinu áfram og almenningur heldur að enn sé tekist á um mikilvægar kenningar, sem þó er fyrir löngu búið að samþykkja af vísindasamfélaginu öllu.

Líklega hafa stjórnmálaskoðanir ekki verið jafn fyrirferðarmiklar í vísindalegri umræðu síðan á valdatíma Stalíns í Sovétríkjunum gömlu. Schlafly á sér mörg skoðanasystkini á Íslandi og ýmsir íslenskir stjórnmálamenn láta því miður stýrast af veruleikasýn sérhagsmunahugveitunnar. Nægir að nefna Brynjar Níelsson og Sigríði Andersen, dómsmálaráðherra.

Ein afleiðing sannlíkisvæðingarinnar í opinberri umræðu er virðingarleysi fyrir raunverulegri þekkingarsköpun. Við slíkar aðstæður er menntakerfið ekki aðeins markvisst fjársvelt eins og gerst hefur á Íslandi. Stjórnmálamennina skortir þá líka getu til þess að greina á milli þekkingar sem byggir á hinni vísindalegu aðferð og innantómum pólitískum spuna. Þeir telja sig ekki bundna af niðurstöðum rannsókna í stjórnvaldsaðgerðum og eru óhræddir við að hunsa þær ef það hentar frekar. Í slíku umhverfi geta stjórnmálamenn rætt mikilvægi þess að „forðast ægivald vísindalegrar kennisetningar“ eins og Teitur Björn Einarsson þingmaður gerði fyrir skömmu þegar rannsóknarniðurstöður voru honum ekki að skapi.

Við greiðum fyrir slíka fáfræði dýru verði. Í samfélögum þar sem sannlíkið er gert að gildu viðmiði er velferð allra ógnað. Þá höfum við tapað einu mikilvægasta tækinu sem við búum yfir til þess að lesa í umhverfið og framtíð okkar á jörðinni.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×