Ragnhildur með fjögurra högga forystu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 19. maí 2017 21:45 Ragnhildur er á einu höggi undir pari. Mynd/[email protected]
Veðrið lék við keppendur á fyrsta keppnisdeginum af þremur á Egils Gullmótinu sem hófst í dag á Hólmsvelli í Leiru. Mótið er þriðja mótið á keppnistímabilinu 2016-17 á Eimskipsmótaröðinni. Aðstæður hjá Golfklúbbi Suðurnesja eru frábærar og keppnisvöllurinn í gríðarlega góðu ástandi miðað við árstíma. Góð skor skiluðu sér í hús í dag og léku alls níu kylfingar undir pari vallar og þar af átta í karlaflokknum. Í kvennaflokknum er Ragnhildur Kristinsdóttir úr GR í efsta sæti en hún er stigameistari Eimskipsmótaraðarinnar 2016. Ragnhildur lék á -1 eða 71 höggi og er hún með fjögurra högga forskot á Gunnhildi Kristjánsdóttur úr GK. Þrír kylfingar deila efsta sætinu í karlaflokknum og þar af er einn 15 ára kylfingur úr GR. Dagbjartur Sigurbrandsson heitir drengurinn og lék hann lék á -3 líkt og Gunnar Smári Þorsteinsson sem er 21 árs og Hlynur Bergsson úr GKG sem er 19 ára.Staða efstu kylfinga í kvennaflokki: 1. Ragnhildur Kristinsdóttir, GR 71 (-1) 2. Gunnhildur Kristjánsdóttir, GK 75 (+3) 3.-5. Berglind Björnsdóttir, GR 77 (+5) 3.-5. Saga Traustadóttir, GR 77(+5) 3.-5. Hafdís Alda Jóhannsdóttir, GK 77 (+5)Staða efstu kylfingar í karlaflokki: 1.-3. Gunnar Smári Þorsteinsson, GR 69 (-3) 1.-3. Dagbjartur Sigurbrandsson, GR 69 (-3) 1.-3. Hlynur Bergsson, GKG 69 (-3) 4. Stefán Már Stefánsson, GR 70 (-2) 5.-8. Dagur Ebenezersson, GM 71 (-1) 5.-8.Theodór Emil Karlsson, GM 71 (-1) 5.-8. Ingvar Andri Magnússon, GR 71 (-1) 5.-8. Nökkvi Gunnarsson, NK 71 (-1) 9.-11. Henning Darri Þórðarson, GK 72 9.-11. Víðir Steinar Tómasson, GA 72 9.-11. Benedikt Sveinsson, GK 72
Golf Mest lesið Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti Uppgjör: Ítalía - Ísland 74-81 | Strákarnir sóttu sigur í gin ljónsins Körfubolti Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport Hareide hættur með landsliðið Fótbolti „Hefurðu enga sómakennd?“ Fótbolti Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Enski boltinn Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Enski boltinn „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn ÍBV kærði Hauka: „Hvernig gæti HSÍ verið annarrar skoðunar en reglurnar?“ Handbolti Fleiri fréttir Vann hæsta verðlaunafé sem golfkona hefur fengið McIlroy skaut niður dróna „Orðinn þreyttur á Venna strax á fyrstu holu“ McIlroy kemur „úr felum“ eftir óvenjulegar æfingabúðir Golfstjarnan mætti á upp svið með Trump Kylfingur blindur á auga eftir golfbolta Hundur hljóp inn á og stal golfkúlu Bales Sigurður sótti silfur fyrstur Íslendinga til Makaó: „Rosalega stoltur“ Íslendingur efstur í Arkansas: „Hann er nýnemi!“ Sjá meira