Skoðun

Samfélagið og annað tækifæri

Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar

Tilfinningar geta truflað umræðu um viðkvæm mál og stundum missir fólk sjónar á skóginum og sér bara eitt tré úr fjöldanum. Fyrir félag sem berst fyrir betrunarstefnu í fangelsismálum er slæmt þegar mál eins einstaklings er dregið fram í dagsljósið og forseti landsins lýsir því yfir að almenningur allur vilji að hann – og hans líkar – verði lokaðir ævilangt inni. Með yfirlýsingu sinni fullyrti forseti Íslands að þjóðin vilji hverfa frá betrunarstefnu í fangelsismálum þegar kemur að mönnum sem brotið hafa kynferðislega gegn börnum. Þjóðin telji að með brotum sínum hafi þeir fyrirgert rétti sínum til að búa meðal annarra íbúa og skuli lokaðir inni til dauðadags.

Afstaða telur að forsetinn hafi ekki séð heildarmyndina þegar hann tjáði sig um málefnið við fjölmiðla og hafi mögulega oftúlkað vilja þjóðarinnar. Vel menntuð og upplýst samfélög hafa nefnilega horfið frá refsistefnu í anda miðalda. Þau átta sig á mikilvægi þess að reyna betra menn sem brotið hafa af sér, burtséð frá brotaflokkum, og umbuna þeim sem greiða skuld sína við samfélagið með afplánun refsingar og góðri hegðun í framhaldinu.

Betrunarstefnan gengur út á refsingu með frelsissviptingu, endurhæfingu með meðferðum, námi og starfsþjálfun og svo aðlögun að samfélaginu á nýjan leik. Ef viðkomandi sýnir að hann getur tekið þátt í samfélagi manna án þess að brjóta af sér og vinnur sér aftur inn traust getur hann sótt um að fá full réttindi að nýju, að í lagalegum skilningi sé mannorðið óflekkað.

Hafa ber í huga að betrunarstefnan nær yfir alla þá sem brjóta af sér, ekki er hægt að gera upp á milli afbrota eða handvelja þá sem fá tækifæri til betrunar. Allir eiga skilið annað tækifæri. Hér á landi er hins vegar betrunarstefnan langt frá því að vera virk og er aðeins smá vísir af henni miðað við Norðurlöndin og það er það sem almenningur ætti að hafa áhyggjur af. Ef ráðherra dómsmála hefur áhuga á að breyta einhverju í þessum málum ætti hún strax að hefjast handa við að tryggja að fangar fái viðeigandi meðferðir og eftirfylgni eftir afplánun og að hún hefji strax samtal um að heildarendurskoða betrunarstefnuna, því aðalmarkmiðið með henni hlýtur alltaf að vera að fækka brotaþolendum, kostnaði og glæpum.

Höfundur er formaður Afstöðu, félags fanga á Íslandi




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×