Þar sem töfrarnir gerast 16. júní 2017 11:00 Systurnar Rebekka og Rakel Ólafsdætur opnuðu nýlega verslun á Langholtsvegi undir nafninu RÓ naturals en þar selja þær bæði hönnun Rakelar og húðvörur Rebekku. Vísir/Ernir
Vef- og auglýsingahönnuðurinn Rakel Ólafsdóttir hefur teiknað og málað frá því hún man eftir sér og elskar að vinna í höndunum. Fyrir tveimur árum var hún meðlimur í hönnunarhópi sem tók að sér ýmiss konar margmiðlunarverkefni og tók meðal annars þátt í pop up-markaði fyrir jólin 2015. Plaköt eftir Rakel vöktu þar mikla athygli og í kjölfarið opnaði hún vefverslunina Sker.is þar sem hún selur plakötin sín.Saman systurnar Nýlega opnaði hún ásamt systur sinni, Rebekku Ólafsdóttur, verslun á Langholtsvegi undir saman nafni en þar selja þær bæði hönnun Rakelar og húðvörur systur hennar undir nafninu RÓ naturals.Dýr og persónur úr Star Wars koma mikið við sögu hjá Rakel.„Við systurnar höfum tekið að okkur ýmis skapandi verkefni saman í gegnum tíðina og hefur draumur okkar alltaf verið að opna litla verslun. Hér seljum við vörur okkar; hönnun mína og húðvörur Rebekku, en vörur hennar handunnar úr 100% náttúrulegum hráefnum. Þær innihalda því engin óþarfa aukaefni eins og alkóhól, paraben og önnur rotvarnarefni. Ég kom einmitt að útliti húðvaranna og markaðsmálum í tengslum við þær ásamt systur minni."Kolféll fyrir vatnslitum Vegna mikilla anna undanfarin ár var það ekki fyrr en í fæðingarorlofi Rakelar fyrir þremur árum sem hún byrjaði að teikna aftur eftir langa pásu og kolféll hún þá fyrir vatnslitum. „Ég er mikill dýravinur og hefur það verið einn helsti innblástur í verkum mínum eins og sjá má á nýlegum verkum. Sterkasti og eflaust þekktasti stíll minn er krotstíllinn og má þar nefna Star Wars myndirnar sem seldar voru á fyrrnefndum Pop up markaði 2015." Krotstíllinn varð ríkjandi í verkjum hennar til að byrja með og hefur hún mjög gaman af því að vinna með þann stíl ennþá. Ásamt því að teikna og mála plaköt hefur hún einnig hannað ýmis grafísk verk. „Yfirleitt hanna ég í settum þar sem verkin tengjast hvert öðru eða eru unnin í sama stíl og er hugmyndavinnan byggð á því. Það er mismunandi hvernig verkin eru unnin en byrjunin er hugmyndavinna, þar næst skissur og að lokum er málað, teiknað eða unnið í tölvu."Sterkasti og eflaust þekktasti stíll minn er krotstíllinn og má þar nefna Star Wars myndirnar sem seldar voru á fyrrnefndum Pop up markaði 2015, segir Rakel Ólafsdóttir.Vísir/ErnirBarnahorn og kaffi Rekstur verslunarinnar hefur gengið vonum framar fyrstu vikurnar að sögna Rakelar og er stefnan að auka vöruúrvalið jafnt og þétt og taka inn nýja íslenska hönnuði. „Við erum m.a. farnar að selja vörur frá töskuhönnuðinum Klementinu og fleiri bætast vonandi fljótlega við." Umhverfismál skipta þær miklu máli eins og sjá má á umbúðum og öðrum pakkningum í versluninni. „Allar vörur RÓ naturals eru í glerumbúðum og er viðskiptavinum gefin kostur á að skila inn tómum krukkum og flöskum í skiptum fyrir 15% afslátt af næstu vöru." Systurnar eru fjölskyldufólk og því er af sjálfsögðu barnahorn í versluninni og alltaf heitt á könnunni að sögn Rakelar. „Vinnuaðstaða okkar er bakatil þar sem töfrarnir gerast en þar er aðstaða til að blanda húðvörurnar og að sinna verktakavinnu í auglýsingagerð ásamt annari markaðsvinnu." Nánari upplýsingar um hönnun og vörur þeirra Rakelar og Rebekku má finna á sker.is á facebook (SKER og RÓ naturals).Plaköt Rakelar eru til sýnis í rúmgóðri versluninni.
Mest lesið Kappleikar 2024: Bara tveir héldu með Donald Trump Lífið Einstakur garður í Mosfellsbænum Lífið Steldu stílnum af Áslaugu Örnu Tíska og hönnun Kappleikar: Skörp orðaskipti og skeytasendingar Lífið Óhrædd við að fara sínar eigin leiðir Lífið Sterkustu hjón landsins selja íbúðina Lífið Húðrútína Birtu Abiba Lífið Með stórstjörnum í væntanlegri kvikmynd Marvel Bíó og sjónvarp Vissu hvorki verðið á strætómiða né bjór Lífið Svar Bents við hatursorðræðu gegn útlendingum Lífið Fleiri fréttir Steldu stílnum af Áslaugu Örnu Heitustu tískuskvísur landsins fögnuðu Ógleymanlegt að vinna fyrir Rihönnu Flott klæddir feðgar Fagurfræði: Hvernig förðum við mismunandi húðtýpur? Hönnunarverðlaunin 2024: Verðlaunuð fyrir Smiðju Stappað á sjóðheitri tískusýningu hönnuða framtíðarinnar Galvaskar Gucci gellur á galakvöldi Líf og fjör hjá Íslendingum á virtri hátíð í Berlín Fagurfræði: Það sem flestir hræðast þegar kemur að förðun Laufey glæsileg í 400 þúsund króna kjól Bestu hrekkjavökubúningar stjarnanna Lítið um litadýrð en glamúrinn í hávegum hafður Kynntust í Mílanó og urðu sálarsystur í tískunni Nærfatamódelin sneru aftur eftir sex ára hlé Heitustu skvísur landsins skáluðu fyrir Ástrós Skelltu sér í rússíbana með James Franco á tískusýningu ársins Hvernig náum við fram okkar bestu andlitsdráttum? „Mér leið eins og alvöru prinsessu“ Sjá meira