Skoðun

Alzheimer

Guðjón S. Brjánsson skrifar
Á síðustu dögum Alþingis var samþykkt með 63 greiddum atkvæðum þingsályktunartillaga Samfylkingarinnar um heildstæða stefnu í málefnum einstaklinga með heilabilun.

Ísland hefur til þessa verið eitt örfárra Evrópuríkja sem ekki hafa mótað heildstæða stefnu í málefnum fólks með þennan hrörnunarsjúkdóm og eina norræna ríkið. Nefnd innan ESB lagði til í fyrra að Alzheimer-sjúkdómurinn og skyldir sjúkdómar yrðu skilgreindir sem forgangsverkefni í heilbrigðismálum í Evrópu samkvæmt stefnu sem hefði það að markmiði að bregðast við afleiðingum þessara sjúkdóma, og efla rannsóknir sem leitt gætu til markvissra meðferðarlausna.

Heilabilun er afleiðing nokkurra sjúkdóma þar sem Alzheimer er algengastur og orsakar um 60%–70% heilabilunartilfella, en aðrir sjúkdómar eru t.d. Lewy body heilabilun og æðakölkun. Nú eru engar leiðir til lækninga, en meðferð vegna heilabilunar er veitt með ýmsu móti, t.d. lyfjameðferð við undirliggjandi sjúkdómi, einnig sérhæfðri umönnun og með fræðslu til aðstandenda sem oftast sjá um umönnun innan heimilis. Sálfræðilegur og félagslegur stuðningur er veittur ásamt sérhæfðri hjúkrun og umönnun á seinni stigum.

Skráning einstaklinga með heilabilun er mjög brotakennd hér og enginn einn aðili getur á áreiðanlegan hátt tilgreint umfang heilabilunarsjúkdóma. Alzheimersamtök Evrópu (Alzheimer Europe) hafa áætlað að einstaklingar með heilabilun á Íslandi séu um 4.000 og byggja útreikninga sína á lýðfræðilegum aðstæðum. Þetta samsvarar um 1,19% af heildarfjölda íbúa. Hlutfall íbúa á Íslandi með greinda heilabilun samkvæmt þessu er enn umtalsvert lægra en reiknað meðaltal ESB-landa, sem er 1,55%.

Um sex milljónir einstaklinga í Evrópu eru greindar með Alzheimer og skylda sjúkdóma á ári hverju og fjölgar stöðugt. Ef horft er til greininga og framtíðarspár frá nágrannalöndum, m.a. frá dönskum og breskum greiningaraðilum, eru líkindi til þess að árið 2040 verði heildarfjöldi einstaklinga með heilabilun sem hlutfall af íslensku þjóðinni komið í 1,2–2,9%. Þetta hlýtur að teljast áhyggjuefni sökum þess hve mikla umönnun þeir þurfa sem hafa langt gengna heilabilun. Íslenska velferðarkerfið er enn sem komið er vanbúið til að takast á við þetta krefjandi verkefni.

 

Höfundur er alþingismaður.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×