Skoðun

Styttri vinnuvika – eitt mikilvægasta efnahagsmál næstu missera

Guðríður Arnardóttir skrifar
Tilraunaverkefni BSRB og Reykjavíkurborgar um styttri vinnuviku hefur staðið yfir frá árinu 2015. Vorið 2017 var sambærilegu verkefni ýtt úr vör í samstarfi við ríkið. Rannsakað er m.a. hver áhrif styttingar vinnutímans eru á gæði og hagkvæmni þjónustu sem vinnustaðirnir veita, auk áhrifa á vellíðan starfsmanna og starfsanda. Sambærilegar mælingar voru gerðar á vinnustöðum þar sem vinnuvikan var höfð óbreytt til að fá samanburð.

Niðurstöður tilraunaverkefnis Reykjavíkurborgar um styttingu vinnuvikunnar hafa að öllu leyti verið jákvæðar. Styttri vinnuvika bætir andlega og líkamlega líðan starfsmanna, skammtímaveikindi lækka og starfsánægja eykst.

Vinnuvika Íslendinga er umtalsvert lengri en þekkist hjá frændþjóðum okkar og eru Íslendingar nærri toppnum með lengsta vinnuviku í Evrópu. Íslendingar þurfa að vinna meira en aðrir Norðurlandabúar til að afla álíkra efnahagslegra lífskjara, minni ávinningur er af hverri vinnustund sem leiðir til lakari lífskjara þar sem frítími er styttri.

Venjulegur og hefðbundinn vinnudagur í Svíþjóð, og annars staðar á Norðurlöndunum, er sjö tímar. Þetta er eitt af megineinkennum hinna norrænu velferðaríkja, að hafa stutta vinnuviku. Höfuðtilgangurinn er velferð hinna vinnandi stétta, svo að fólk geti betur sinnt fjölskyldum sínum og þurfi ekki að slíta sér út í vinnu. En þetta fyrirkomulag hefur ekki síður komið sér vel fyrir atvinnurekendur; vinnuframleiðni og hagkvæmni hefur nefnilega aukist. Fólk gerir jafnmikið og stundum meira í vinnunni á sjö tímum en tíu. Minna er um skrepp, veikindi, frí, hangs og langa matartíma.

Hver einstaklingur sem er frá vinnu kostar samfélagið og einstaklingur sem fer á örorku í kjölfar kulnunar í starfi eða langvarandi streitu verður ekki bara af ævitekjum það sem eftir er, heldur er það kostnaður fyrir samfélagið að framfleyta viðkomandi.

Og á meðan ekkert hefur þokast áleiðis til styttri vinnuviku frá árinu 1971 eru nágrannaþjóðir okkar að stíga enn frekari skref í þá átt. Nú eru fjölmörg fyrirtæki í Svíþjóð að færa sig yfir í 6 klukkustunda vinnudag og freista þess þannig að auka framlegð starfsfólks á vinnutíma samhliða aukinni starfsánægju.

Það er ekki verjandi annað en Samtök atvinnulífsins og launþegar í landinu taki höndum saman og stytti vinnuvikuna og auki þannig framlegð, þjóðartekjur og lífsgæði þjóðarinnar.

Höfundur er formaður Félags framhaldsskólakennara




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×