Skoðun

Tuttuguogfimmþúsundkallinn á ábyrgð fjórflokks og Pírata

Ólafur Ísleifsson skrifar
Frítekjumarkið ellilífeyris var ákveðið 25 þúsund krónur með breytingu á lögum um almannatryggingar sem tók gildi 1. janúar sl.

Frumvarp og nefndarálit leiðir í ljós að við meðferð frumvarpsins sem m.a. fól í sér breytingar á ellilífeyrisákvæðum almannatrygginga var talið flækja kerfið að sama frítekjumark gilti ekki um allar tekjur, óháð uppruna þeirra. Haldið var fram að í því skyni að til að einfalda kerfið væri ekki gert ráð fyrir frítekjumörkum vegna tekna í breyttu kerfi en samhliða var lagt til að áhrif tekna á fjárhæð ellilífeyris yrðu hin sömu án tillits til hvers konar tekjur er um að ræða.

Fyrir atbeina hagsmunasamtaka aldraðra, sem töldu mikilvægt að ellilífeyrisþegar gætu haft tekjur án þess að þær hefðu áhrif á fjárhæð ellilífeyrisins, varð að ráði að setja frítekjumark sem gilti um allar tekjur.

Af hálfu stjórnarmeirihlutans var ákveðið að ellilífeyrisþegar mættu hafa 25.000 kr. á mánuði í tekjur án þess að það hafi áhrif á fjárhæð ellilífeyrisins til lækkunar. Frítekjumarkið er almennt og skiptir ekki máli hvort um er að ræða atvinnutekjur, greiðslur frá lífeyrissjóðum, fjármagnstekjur eða hugsanlega aðrar greiðslur. Minni hlutinn, þar á meðal píratar studdu, þessa tillögu meiri hlutans um 25.000 kr. frítekjumark fyrir allar tekjur eldri borgara.

Flokkur fólksins hefur tekið eindregna afstöðu gegn þessu naumt skammtaða  frítekjumarki allt frá upphafi. Fjárhæðin dugir ekki einu sinni fyrir kostnaði við að sækja vinnu. Sjálfur hef ég ítrekað tekið málið upp, ekki síst hvað þetta lága frítekjumark gerir eldra fólki erfitt um vik við að auka tekjur sínar. Fólk lifir æ lengur og býr margt hvert við góða heilsu og starfsorku. Hér er dýrmætt vinnuafl sem leggur af mörkum til samfélagsins með því að greiða skatta og skyldur. Með útilokun þessa aldurshóps frá vinnumarkaði er litið fram hjá jákvæðum efnahagslegum, félagslegum og lýðheilsufræðlegum sjónarmiðum.

Nú keppast aðrir flokkar, ekki síst þeir sem ábyrgð bera á tuttuguogfimmþúsundkallinum, við að taka upp stefnu Flokks fólksins, svo trúverðug sem sú afstaða er að leggjast gegn eigin hugarfóstri. Flokkur fólksins mun beita sér af alefli í þessu máli svo eldra fólk geti án þessara skerðinga stundað vinnu og aukið þannig tekjur sínar og lífsgæði eftir því sem vilji þeirra og geta  stendur til. Frítekjumarkið er eitt sf mörgum málum sem Flokkur fólksins ætlar að afgreiða i burt fái hann brautargengi í kosningunum.

Höfundur skipar 1. sæti framboðslista Flokks fólksins í Reykjavík norður í komandi Alþingiskosningum.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×