Skoðun

Ekkert um okkur án okkar

Jökull Ingi Þorvaldsson skrifar
Fullorðið fólk telur sig of oft vita hvað er börnum fyrir bestu og hvað þau vilja, frekar en þau sjálf. Færni barna til þess að ákveða sjálf hvað þau vilja er stórlega vanmetin og raddir barna eru alltof oft hunsaðar í málum sem varða þau í okkar samfélagi. Við viljum öll gera það sem er börnum fyrir bestu. Greiðasta og áhrifaríkasta leiðin til þess er að hlusta og taka mark á því sem við segjum. Því er mikilvægt að raddir barna og ungmenna fái að heyrast og að fullorðna fólkið hlusti.

Alltof mörg dæmi eru til um það að fullorðið fólk hunsi rödd ungs fólks í málum sem varða þau og er það aðallega í menntamálum en við erum að stefna í rétta átt þó hægt gangi. Ég hef heyrt of mikið af sögum og upplifað sjálfur aðstæður þar sem ráðamenn sitja fundi með ungmennum og sýna vanvirðingu og áhugaleysi sem þeir myndu aldrei komast upp með í öðrum aðstæðum, og noti ungmenni oft aðeins sem pólitískan sýningargrip.

Orðtakið „Ekkert um okkur án okkar“ er orðtak sem við sem berjumst fyrir réttindum barna notum mikið. Sorglegt en satt tíðkast sá siður hjá ráðamönnum að taka ákvarðanir sem varða okkur án nokkurs samráðs við ungmenni. Fer það oft ekki vel í okkur ungmennin því þetta er okkar framtíð, ekki þeirra og látum við því ekki kyrrt liggja.

Til dæmis má nefna þær ótal ákvarðanir sem hafa verið teknar varðandi samræmdu prófin og styttingu framhaldsskóla í fyrra án samráðs við ungmenni. Eftir það atvik hafa hlutirnir breyst en við eigum ennþá mikið verk fyrir höndum og er boltinn núna hjá ráðamönnum. Þeir þurfa að taka sig á og bæta það landslag sem við höfum núna verulega.

Taka má til fyrirmyndar Menntamálastofnun sem á síðasta ári stofnaði ungmennaráð Menntamálastofnunar. Þó það sé ennþá ekki fullmótað gengur það vel fyrir sig og er á réttri leið. Er ungmennaráðið ennþá frekar ungt en það hefur strax sýnt fram á mikilvægi þess að hafa samstarf við ungmenni. Þetta er dæmi um vinnubrögð sem aðrar opinberar stofnanir ættu að temja sér því við höfum margt, margt fram á að færa.

Það er löngu tímabært að við hlustum á það sem börn, unglingar og ungmenni hafa að segja. Það erum jú við sem erfum þennan heim. Hvert barn hefur mikið fram að færa sem er ástæða þess að við í ungmennaráði UNICEF hvetjum ykkur foreldra, ráðamenn, forseta, kennara og allt fullorðið fólk til að gefa börnunum orðið og heyra hvað þeim liggur á hjarta.

Höfundur starfar í ungmennaráði UNICEF á Íslandi.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×