Skoðun

Stilling klukkunnar

Þorsteinn Sæmundsson skrifar
Þriðjudaginn 28. nóvember birtist ritstjórnargrein í Fréttablaðinu þar sem fjallað var um þá hugmynd að breyta stillingu klukkunnar hér á landi og seinka henni um eina klukkustund. Greinin er hófsamlega skrifuð, og getur undirritaður tekið undir flest sem þar er sagt. Eitt atriði þyrfti þó að leiðrétta. Það er fyrsta setningin, sem segir að í ein fimmtíu ár hafi Íslendingar kvartað yfir klukkunni. Þetta er misskilningur.

Þegar stillingu klukkunnar var breytt með lagasetningu árið 1968 hafði um áratuga skeið verið farin sú leið að flýta klukkunni á sumrin en seinka henni aftur á veturna. Þetta hringl með klukkuna, eins og það var kallað, hafði mörgum þótt óþægilegt, og kvartanir í lesendabréfum dagblaðanna voru árviss viðburður. Markmiðið með lagasetningunni var fyrst og fremst það að koma á föstum tíma allt árið. Eftir vandlega athugun var ákveðið að klukkur skyldu stilltar eftir flýttri klukku, miðtíma Greenwich.

Röksemdirnar sem nefndar voru í greinargerð með frumvarpinu voru í stuttu máli þessar: (1) að flýtta klukkan gilti þá þegar meira en helming ársins, (2) að sú klukka samsvaraði „heimstíma“ sem hafður væri til viðmiðunar í margs konar alþjóðlegum viðskiptum, (3) að breytingin myndi færa Ísland nær meginlandi Evrópu í tíma og (4) dagsbirtan myndi nýtast betur því að myrkurstundum á vökutíma myndi fækka. Neikvæð áhrif voru að sjálfsögðu nefnd. Þótt þess væri ekki getið í greinargerðinni, hafði takmörkuð skoðanakönnun meðal forsvarsmanna stofnana, fyrirtækja, skóla og félagasamtaka bent til þess að flestir væru hlynntari flýttri klukku.

Í meira en tuttugu ár eftir lagasetninguna heyrðust engar kvartanir frá almenningi. Það er ekki fyrr en á síðari árum að komið hafa fram raddir sem kalla á breytingu. Má þar nefna þingsályktunartillögu árið 1994, frumvarp árið 1995 (endurflutt 1998 og 2000) og þingsályktunartillögur árin 2006, 2010, 2013 og 2014. Fram til ársins 2010 gengu tillögur þingmanna í þá átt að flýta klukkunni enn frekar en nú er gert, nánar tiltekið yfir sumarið. Tillögurnar 2013 og 2014 gengu hins vegar í gagnstæða átt, þ.e. flutningsmenn vildu seinka klukkunni, a.m.k. yfir veturinn. Öllum þessum frumvörpum og tillögum eru gerð skil á vefsíðu Almanaks Háskólans:

https://www.almanak.hi.is/timreikn.html



Að tillögurnar skyldu ganga í ólíkar áttir sýnir glöggt að engin lagasetning getur sætt öll sjónarmið. Síðustu þingsályktunartillögurnar hnigu að því að klukkunni skyldi seinkað. Eftirfarandi umfjöllun á því erindi til almennings nú þegar hið sama er til umræðu.

https://www.almanak.hi.is/seinkun3.html



Ég vil eindregið ráðleggja þeim sem hafa áhuga á þessu máli að kynna sér vandlega ofangreind gögn. Stilling klukkunnar er mál sem snertir alla landsmenn. Breytingar geta haft margvísleg áhrif, og þau eru ekki alltaf augljós.

 

Höfundur er stjörnufræðingur.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×