Stuðningsfólk Miðflokksins sér á parti hvað varðar skötuát Anton Egilsson skrifar 23. desember 2017 13:12 Það dregur úr skötuáti á milli ára. Vísir/GVA
Alls 34,5 prósent ætla að borða skötu í dag, Þorláksmessudag, samkvæmt nýrri könnun MMR á jólahefðum landsmanna. Er það fækkun um eitt og hálft prósentustig frá því í fyrra og 7,6 prósentustiga fækkun frá því tíðni skötuáts náði hámarki í mælingum MMR árið 2013. Samkvæmt könnuninni höfðar skatan meira til karla en kvenna en 41 prósent karla sögðust ætla að borða skötu í dag samanborið við 28 prósent kvenna. Þá var yngra fólk mun ólíklegra til að segjast ætla að borða skötu en eldra fólk. Af þeim sem tóku afstöðu og tilheyrðu yngsta aldurshópnum, 18 til 29 ára, sögðust 20 prósent ætla að borða skötu á Þorláksmessu, borið saman við 60 prósent í aldurshópnum 68 ára og eldri. Þá var fólk á landsbyggðinni töluvert líklegra til að segjast ætla að borða skötu en fólk á höfuðborgarsvæðinu. Af þeim sem tóku afstöðu og voru búsett á landsbyggðinni sögðust 46 prósent ætla að borða skötu á Þorláksmessu en einungis 28 prósent íbúa á höfuðborgarsvæðinu. Stuðningsfólk Miðflokksins er duglegast við að borða skötu ef marka má könnunina en af þeim sem tóku afstöðu til spurningarinnar og sögðust styðja Miðflokkinn ætluðu 54 prósent að borða skötu í dag, borið saman við 27 prósent stuðningsfólks Viðreisnar og 26 prósent stuðningsfólks Pírata.
Jólamatur Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Innlent Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Innlent Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Innlent Vargöldin á Haítí versnar hratt Erlent Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Innlent Sundhnúksgígaröðin að verða búin Innlent Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Innlent Viðreisn stærst samkvæmt nýrri kosningaspá en mjótt á munum Innlent Læknar fara þokkalega bjartsýnir inn í morgundaginn Innlent Fleiri fréttir Biskup fagnar hækkun sóknargjalda Sundhnúksgígaröðin að verða búin Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Breyting á eldgosinu og stór dagur í Karphúsinu Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Minni virkni í miðgígnum Vextir og kosningar í Sprengisandi Réttindalausir stútar á ferðinni Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Ók á ljósastaur við Grensásveg Eldur kviknaði í bíl í Mosfellsbæ Læknar fara þokkalega bjartsýnir inn í morgundaginn Viðreisn stærst samkvæmt nýrri kosningaspá en mjótt á munum Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt til niðurskurð á hverju ári Hefur gefið Landgræðslunni 26 milljónir króna í formi fræja Mikilvægt að Bláa lónið geti opnað sem fyrst Hvetja íbúa Suðurnesja til að spara heita vatnið Varnaraðgerðir í Svartsengi og umdeild yfirhalning hjá Jaguar Ísland virðir handtökuskipan á hendur Netanjahú Fjölmiðlabann í kjaradeilu kennara Hildur hnýtir í Sigurð og sakar hann um ýkjur Straumar valda álagi á varnargarða og staðan viðkvæm Byggt og byggt á Suðurlandi og það þarf að byggja enn meira KÍ segir ummæli Ingu Rúnar „rannsóknarefni“ „Við gerum aldrei neitt nema með fullu samþykki“ Bein útsending: Hvar eru umhverfis- og loftslagsmálin í kosningabaráttunni? Kennarasambandið sýni kennurum „alvarlega lítilsvirðingu“ Spennandi og sögulegar kosningar: Fjórir flokkar berjast fyrir lífi sínu í fallbaráttu Sjá meira