Skoðun

Er Borgarlínan lausnin á öllum samgöngumálum höfuðborgarsvæðisins?

Bryndís Haraldsdóttir skrifar
Nei. En Borgarlínan er hluti af lausninni og framtíðarsýn sveitarfélaganna á svæðinu um hvernig hægt sé að byggja upp gott borgarsamfélag til framtíðar. Samfélag sem áætlað er að fjölgi um 40.000 til ársins 2030 og um 70.000 íbúa fram til ársins 2040. Ferðamönnum sem vilja heimsækja svæðið mun jafnframt halda áfram að fjölga.

Hugmynd sveitarfélaganna gengur út á samgöngu- og þróunarás milli kjarna allra sveitarfélaganna. Samgöngu- og þróunarásinn er hugsaður til að auðvelda samgöngur á milli staða og stuðla að þéttari byggð meðfram ásnum. Hugmyndin er af skipulagslegum toga en ekki tæknilegum, hún gerir í raun einfaldlega ráð fyrir því að fólk þurfi að komast á milli staða og til þess þurfi landrými. Auðvitað er það svo að ef við förum að notast við fljúgandi bíla á næstu árum eða áratugum þá er ekki lengur þörf fyrir slíkan ás. En þar til það verður að veruleika er óhjákvæmilegt annað en að gera ráð fyrir landrými fyrir samgöngur. Þá er næsta spurning hvernig við tryggjum öruggar og góðar samgöngur á svæðinu með sem hagkvæmustum hætti. Þar sýna greiningar sveitarfélaganna að með því að fjármagna Borgarlínu sparast fjármagn við enn dýrari umferðarmannvirki eins og jarðgöng. Það sem meira er, ef litið er til umferðar­spálíkananna, þá náum við líka meiri árangri með Borgarlínu en ef eingöngu er hugað að stofnvegum fyrir einkabílinn. Sem sagt, það að fara ekki í Borgarlínu er dýrara og tafir í umferðinni aukast enn meira.

Það er nauðsynlegt að setja fjármagn í samgöngumannvirki á höfuðborgarsvæðinu

Nauðsynlegt er að horfa heildstætt til þróunar samgöngumála á höfuðborgarsvæðinu ásamt fjármögnun fyrirhugaðrar Borgarlínu. Samhliða útfærslu Borgarlínu verður að skoða mögulegar viðbætur og endurbætur á stofnbrautakerfinu sem eru til þess fallnar að auka umferðaröryggi, greiða fyrir umferð og leysa umferðarhnúta.

Fjármagn til samgöngumála er af skornum skammti og hingað til höfum við rætt meira um hvort næstu stórframkvæmdir í samgöngumannvirkjum verði fyrir vestan, austan eða norðan. Sem þingmaður höfuðborgarsvæðisins segi ég að nú er kominn tími á höfuðborgarsvæðið, við verðum að fjárfesta í umferðarmannvirkjum hér. En fjárfestingin þarf að vera skynsamleg og hún þarf að hafa raunveruleg áhrif á umferðarflæðið á öllu svæðinu auk þess sem lausnin þarf að taka mið af framtíðaruppbyggingu á höfuðborgarsvæðinu. Þess vegna er mikilvægt að hlusta á vilja sveitarfélaganna, hlusta á sérfræðinga í umferðar- og skipulagsmálum og leita raunverulegra lausna til framtíðar. Borgarlínan er og verður að vera hluti af þeirri lausn.

Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×