Unnustinn er krefjandi viðskiptavinur Starri Freyr Jónsson skrifar 1. febrúar 2018 12:00 Parið á bak við SlaufHann er Elísa Hallgrímsdóttir, sem sér um hönnunina, og unnusti hennar Dagur Jónsson, sem sér um markaðs- og sölumál. Með á myndinni er sonur þeirra sem að sjálfsögðu klæðist slaufu. MYNDIR/EYÞÓR
Slaufurnar frá SlaufHann hafa vakið athygli undanfarið ár en um er að ræða handsaumaðar slaufur byggðar á íslenskri hönnun. Slaufurnar eru úr tweed-efni, bómull eða silki og ber hver þeirra karlmannsnafn sem tengist fjölskyldu hönnuðarins, Elísu Hallgrímsdóttur. „Unnusti minn, Dagur Jónsson, hefur alltaf verið mikill slaufumaður og er án efa mest krefjandi viðskiptavinur minn. Ég byrjaði á sínum tíma að föndra slaufur fyrir hann og vinir hans urðu mjög hrifnir. Dagur hvatti mig mikið til þess að keyra á þetta verkefni og koma slaufunum í sölu. Á þessum tíma voru aðilar á markaðnum að selja herraslaufur sem okkur þótti mjög flottar og því vorum við ekkert að leggja mikið upp úr því að stækka þetta áhugamál.“Fallegar og litríkar slaufur gera mikið fyrir heildarútlitið og henta öllum aldurshópum.Örlagaríkt ár Þegar leið nær jólum 2015 fóru hlutirnir þó aðeins að breytast. „Þá ákvað ég að gefa fjölskyldumeðlimum slaufur með jólapakkanum auk þess sem vinir og kunningjar sóttu í slaufurnar fyrir jólin. Á þessum tímapunkti áttaði ég mig á því að mér þætti þetta bæði mjög skemmtilegt og gefandi verkefni.“ Verkaskiptingin milli þeirra er skýr, Elísa sér um hönnun og Dagur sér um allt sem tengist markaðs- og sölumálum.„Unnusti minn, Dagur Jónsson, hefur alltaf verið mikill slaufumaður og er án efa mest krefjandi viðskiptavinur minn. Ég byrjaði á sínum tíma að föndra slaufur fyrir hann og vinir hans urðu mjög hrifnir," segir Elísa Hallgrímsdóttir.Feðgaslaufur vinsælar Hún segir eftirspurnina hafa aukist mikið undanfarið ár. „Við fórum líka af stað með minni slaufur fyrir krakka og unglinga ásamt því að prófa okkur áfram með ungbarnaslaufur sem hafa vakið mikla lukku, sérstaklega í kringum hátíðirnar. Um mitt ár 2017 hóf ég að þróa feðgasett en persónulega finnst mér geggjað að sjá feðga með slaufur í stíl. Í dag er feðga- og bræðrasettið vinsælustu vörur okkar.“ Við þá þróunarvinnu fannst henni þurfa að hanna eitthvað fyrir litlu dömurnar líka. „Ég ákvað því að útbúa spöng og teygju í hárið með sömu slaufu og faðirinn er með. Eftirspurnin var til staðar þannig að ég ákvað að slá til og er ég virkilega ánægð með útkomuna.“Slaufurnar eru úr ýmsum efnum og í mörgum skemmtilegum litum.Heita karlkynsnöfnum Snemma í ferlinu ákvað Elísa að gefa hverri slaufu nafn eftir karlmanni í fjölskyldunni, nöfn á borð við Brynjólfur, Alexander, Hallgrímur og Franz. „Það var lítið mál í upphafi en eftir að úrvalið jókst hefur verið vægast sagt erfitt að nefna þær. Bráðum verð ég eflaust uppiskroppa með nöfn en ætlunin er að halda áfram með vöruþróun og koma með nýjar og skemmtilegar hugmyndir fyrir nýjar slaufur.“Sýnishorn af feðgaslaufunum vinsælu.Nýjar vörur fram undan Fram undan er enn frekari vöruþróun og betra úrval svo allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi. „Okkur langar mikið að koma með vörulínu fyrir ungar stelpur sem allra fyrst, þar sem sú hugmynd hefur fengið frábærar undirtektir. Svo eru fermingar á næsta leiti og þar verðum við með skemmtileg tilboð. Markmiðið er einnig að taka þátt í Mottumars og vonandi fleiri viðburðum á árinu. Annars verður virkilega spennandi að sjá hvað árið mun bjóða upp á og hvernig verkefni við munum takast á við á árinu. Nú þegar er byrjað að panta fyrir fermingarnar og þar er mikið af sérpöntunum í gangi.“ Slaufurnar eru fáanlegar á Facebook, hjá herrafataversluninni Karlmönnum á Laugavegi, Bíumbíum barnafataverslun, Pride of Iceland á Laugavegi og á söluvef Já.is.
Mest lesið Einstakur garður í Mosfellsbænum Lífið Steldu stílnum af Áslaugu Örnu Tíska og hönnun Kappleikar 2024: Bara tveir héldu með Donald Trump Lífið Kappleikar: Skörp orðaskipti og skeytasendingar Lífið Óhrædd við að fara sínar eigin leiðir Lífið Sterkustu hjón landsins selja íbúðina Lífið Húðrútína Birtu Abiba Lífið Með stórstjörnum í væntanlegri kvikmynd Marvel Bíó og sjónvarp Vissu hvorki verðið á strætómiða né bjór Lífið Svar Bents við hatursorðræðu gegn útlendingum Lífið Fleiri fréttir Steldu stílnum af Áslaugu Örnu Heitustu tískuskvísur landsins fögnuðu Ógleymanlegt að vinna fyrir Rihönnu Flott klæddir feðgar Fagurfræði: Hvernig förðum við mismunandi húðtýpur? Hönnunarverðlaunin 2024: Verðlaunuð fyrir Smiðju Stappað á sjóðheitri tískusýningu hönnuða framtíðarinnar Galvaskar Gucci gellur á galakvöldi Líf og fjör hjá Íslendingum á virtri hátíð í Berlín Fagurfræði: Það sem flestir hræðast þegar kemur að förðun Laufey glæsileg í 400 þúsund króna kjól Bestu hrekkjavökubúningar stjarnanna Lítið um litadýrð en glamúrinn í hávegum hafður Kynntust í Mílanó og urðu sálarsystur í tískunni Nærfatamódelin sneru aftur eftir sex ára hlé Heitustu skvísur landsins skáluðu fyrir Ástrós Skelltu sér í rússíbana með James Franco á tískusýningu ársins Hvernig náum við fram okkar bestu andlitsdráttum? „Mér leið eins og alvöru prinsessu“ Sjá meira