Skoðun

Sáttmáli kynslóðanna

Hildur Björnsdóttir skrifar
Þær bjuggu í sveit eða fámennum plássum við sjávarsíðuna – íslenskar stórfjölskyldur – þrjár kynslóðir sem saman háðu lífsbaráttuna. Umönnun þeirra minnstu eða bjargarlausu fór fram innan heimilis. Hver reiddi sig á annan og annar reiddi sig á hinn. En lífsmynstur breyttust. Konur vinna nú utan heimilis, börn sækja dagvistun og stofnanir annast aldraða. Samskipti kynslóða breyttust.

Lífaldur fer hækkandi og heilsufar batnandi. Eldra fólk er nú betur á sig komið en áður. Hluti aldraðra þarfnast þjónustu og stuðnings – en þeim heilsuhraustu fjölgar. Það er mikilvægt að styðja við samfélagsþátttöku eldra fólks. Eftir því sem fólk er virkara, upplifir það meiri lífsfyllingu og vellíðan – sem aftur stuðlar að langlífi.

Um þriðjungur fagmenntaðra leikskólakennara hverfur á eftirlaun innan tíu ára. Með breyttu lífeyriskerfi mætti halda faglærðum lengur við kennslu. Afnám lífeyrisskerðinga er mikilvægt baráttumál. Margir telja málið óþarft – lífeyrisþegar séu áhugalausir um störfin. Félag eldri borgara er á öðru máli. Í nýlegri ályktun lýstu félagsmenn sig reiðubúna til að starfa á leikskólum borgarinnar. Margir hefðu fulla starfsgetu og ærinn vilja til að leggja sitt af mörkum.

Læknirinn William H. Thomas þróaði þekkta hugmyndafræði um samspil kynslóða. Hugmyndir hans sögðu samskipti við börn færa öldruðum aukin lífsgæði. Hefur hugmyndafræðin verið innleidd víða erlendis. Þar hafa risið leikskólar samhliða dvalarheimilum. Hefur fyrirkomulagið stuðlað að auknum samskiptum barna og aldraðra. Aukið samspil kynslóða leiðir af sér ánægju allra hlutaðeigandi. Það sýnir fjöldi rannsókna. Börn veita öldruðum lífsgleði og létta lund þeirra sem stríða við einsemd. Þeir eldri veita börnum víðsýni og aukna þekkingu. Sameining kynslóða er öllum til sóma. Ungur nemur, gamall temur.

Við viljum stuðla að auknum samskiptum barna og eldra fólks. Við viljum virkja félagsauð aldraðra í skólastarfi. Við viljum leiða saman kynslóðir í lestri og söng – viðhalda sagnahefð og íslenskri tungu. Við viljum auka lífsgleði og lífsgæði. Við trúum á samvinnu í lífsbaráttunni – samspil og sáttmála kynslóðanna.

Höfundur skipar 2. sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×