Skoðun

Orð og gerðir

Magnús Guðmundsson skrifar
Það er vart sá Íslendingur sem gerir sér ekki grein fyrir því að heilbrigðiskerfið er löngu komið að einhvers konar þolmörkum. Margar deildir á stundum yfirfullar, kostnaður langveikra oftar en ekki allt of hár, biðin eftir þjónustu löng, erfið og jafnvel ekki án afleiðinga og margar starfsstéttir innan kerfisins langþreyttar á ástandinu. Þetta ástand hefur lengi verið fyrirferðarmikið í umræðunni frá degi til dags og í stjórnmálunum í aðdraganda kosninga þegar frambjóðendur kappkosta að lofa endurreisn og boða betri tíð með blóm í haga.

Þegar ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur tók við í lok nóvember síðastliðins, í nafni pólitísks og efnahagslegs stöðugleika, er ekki laust við að margir hafi bundið vonir við komu Svandísar Svavarsdóttur í heilbrigðisráðuneytið. Þær vonir dvína þó ört því henni virðist ætla að verða lítið ágengt í þeim skjótu umskiptum á heilbrigðiskerfinu til betri vegar sem þorri þjóðarinnar hefur svo lengi beðið eftir. Auk þess sem Svandís er illu heilli farin að verja vondan málstað í kjaradeilu ríkisins og ljósmæðra fremur en að beita sér fyrir sómasamlegri lausn málsins.

Það er ekki að undra að ljósmæður séu ósáttar við ummæli Svandísar á Alþingi síðastliðinn mánudag þar sem hún gaf til kynna að kjaravanda ljósmæðra mætti rekja til þess að þær hefðu valið að vera innan sérstaks stéttarfélags innan BHM. Þessa undarlegu vangaveltu setti Svandís fram í framhaldi af eðlilegri fyrirspurn Guðjóns S. Brjánssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, um kjarabaráttu ljósmæðra, við litla hrifningu ráðherrans. Það er þó bæði ljúft og skylt að taka fram að Svandís sagði líka að meta ætti vinnuframlag ljósmæðra til launa og samfélagslegrar virðingar. Vonandi á það líka við þá mikilvægu tveggja ára menntun sem ljósmæður sækja sér að loknu námi í hjúkrunarfræðum til þess að afla sér réttinda og færni til þessa mikilvæga starfs.

Til þessa virðist, samkvæmt svari Svandísar, að hún hafi látið duga að beita sér í deilunni gegnum forstjóra Landspítalans að bættu starfs- og vaktaumhverfi ljósmæðra. Það er nú tæpast líklegt til árangurs í ljósi þess að hvorki menntun né vinnuframlag ljósmæðra virðast metin til launa. En ef Svandís vill beita sér fyrir því að menntun ljósmæðra sé metin til launa þá gæti hún til að mynda miðað við hverju viðbótarmenntun skilar gamalgrónum háskólastéttum á borð við lögfræðinga og presta. Stéttum sem voru byggðar upp sem hefðbundnar karlastéttir sem er einmitt það sem kvennastéttir þurfa að miða við til þess að ná fram raunverulegu launajafnrétti í samfélaginu.

Að tala fjálglega um mikilvægi ljósmæðra sem kvennastéttar sem sinnir konum á dýrmætum og mikil­vægum tíma í lífi þeirra skilar þeim engu í launaumslagið. Það skilar ekki heldur jafnréttis- og launabaráttu kvenna á Íslandi fram á við á meðan orð og gerðir fara ekki saman. En vonandi ætlar Svandís Svavarsdóttir ekki að vera heilbrigðisráðherra sem segir eitt en gerir annað eða ekki neitt.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×