Skoðun

Pólitísk höft

Hörður Ægisson skrifar
Kaup Guðmundar í Brimi á 34 prósenta hlut í HB Granda, eina sjávarútvegsfyrirtæki landsins sem er skráð í Kauphöllina, fyrir 22 milljarða sæta tíðindum. Þótt þau séu ein stærstu verðbréfaviðskipti eftirhrunsáranna þá gæti kaupverðið orðið allt að 65 milljarðar ef aðrir hluthafar samþykkja yfirtökutilboð sem Brimi ber skylda til að leggja fram. Sú niðurstaða er hins vegar ólíkleg. Ljóst þykir að lífeyrissjóðirnir, sem eiga samanlagt um 44 prósent í HB Granda, eru síður áhugasamir um að félagið hverfi af markaði enda er eignarhald þeirra á HB Granda í raun eina leiðin fyrir sjóðina til að hafa aðkomu að einni mikilvægustu atvinnugrein þjóðarinnar. Sú staðreynd skiptir máli með hliðsjón af þeim takmörkuðu fjárfestingatækifærum sem þeim standa til boða innanlands.

Eftir að hafa búið við eindæma góð rekstrarskilyrði eftir fall fjármálakerfisins, þar sem mikill hagnaður gaf sjávarútvegsfyrirtækjum færi á að greiða hratt niður skuldir og styrkja eiginfjárstöðu sína, hefur staðan snúist við síðustu árin. Afkoman farið versnandi og sam­keppnishæfnin þverrandi. Kaup Brims á ráðandi hlut í HB Granda gæti styrkt stöðu fyrirtækjanna í þessu krefjandi rekstrarumhverfi, ekki hvað síst í sameiginlegu sölustarfi á erlendum mörkuðum, sem gæti þannig skilað sér í hærra verði fyrir afurðir sjávarútvegsfélaganna. Þá binda sumir vonir við að fjárfesting Brims gæti verið upptakturinn að því að félagið fari einnig á markað í fyrirsjáanlegri framtíð. Það er af sem áður var þegar nánast öll stærstu sjávarútvegsfyrirtæki landsins voru skráð á markað um síðustu aldamót.

Slík þróun væri eftirsóknarverð. Með fleiri sjávarútvegsfyrirtæki í dreifðri eigu fjárfesta, lífeyrissjóða og almennings, sem væri mögulega til þess fallið að skapa meiri sátt um þessa grundvallaratvinnugrein, ætti að sama skapi að vera meiri ástæða en ella til að endurskoða tólf prósenta kvótaþakið. Kjartan Ólafsson, stofnandi ráðgjafarfyrirtækisins Markó Partners, bendir réttilega á það í samtali við Markaðinn í vikunni að vaxtarmöguleikar HB Granda og fleiri sjávarútvegsfyrirtækja, sem eru í námunda við kvótaþakið, séu afar takmarkaðir. Íslenskar útgerðir, sem eiga í alþjóðlegri samkeppni, eru litlar í hinu stóra samhengi og til lengri tíma þurfa fyrirtækin að finna leiðir til að ná fram meiri stærðarhagkvæmni. „Ef við getum sammælst um mikilvægi þess að arðsemi auðlindarinnar verði hámörkuð,“ útskýrir Kjartan, „þá hljótum við að þurfa að ræða þær stærðartakmarkanir – fílinn í herberginu – sem hafa verið festar í lög. Það er óhjákvæmilegt.“

Undir þau orð skal tekið. Þótt slíkar stærðartakmarkanir séu víðast hvar í löndunum í kringum okkur þá eru þær hvergi eins takmarkandi og hér á landi, og skiptir þá engu hvort litið er til Færeyja, Noregs, Bandaríkjanna eða Kanada. Sjávarútvegurinn er besta dæmið um atvinnugrein á Íslandi sem hefur tekist, einkum vegna hins hagkvæma fyrirkomulags fiskveiða, að ná mikilli framleiðni vinnuafls og fjárfestingar. Það er hins vegar hægt að gera enn betur. Pólitísk höft hafa staðið í vegi fyrir frekari framþróun sjávarútvegsins. Því verður að breyta.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×