Skoðun

Vaskurinn – breytingar

Vala Valtýsdóttir skrifar
Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp til breytinga á lögum um virðisaukaskatt.

Fjölmiðlar

Sú sérkennilega staða hefur verið til langs tíma að sala fréttablaða hefur verið í tveimur skatthlutföllum. Fyrirhugaðar breytingar eru því sérstaklega til höfuðs þeim mismun skattlagningar eftir formi, s.s. sölu fréttablaða á rafrænu formi eða á pappírsformi. Í frumvarpinu segir m.a að gera þurfi skýran greinarmun á þeirri starfsemi fjölmiðla sem sinnir lýðræðis- og menningarlegu hlutverki og hins vegar á annarri starfsemi þeirra eða annarra aðila sem felst í miðlun efnis í afþreyingarskyni eftir pöntun, svokallaðri VOD-þjónustu (e. Video-on-demand). Síðan segir að tilgangurinn með þessum mismun sé að stuðla eigi að eflingu á fréttum og fréttatengdu efni, verndun íslenskunnar o.fl. Þannig er mismunandi vsk. eftir því hvort þú kaupir íslenska þáttagerð í áskrift eða með VOD. Þessi rökstuðningur er alveg óskiljanlegur þar sem einnig er hægt að kaupa íslenskt efni á VOD-leigum.



Innskattur af fólksbifreiðum ferðaþjónustunnar

Sanngirnisrök eru fyrir því að heimila þennan innskatt – enda eru þessar bifreiðar notaðar til fólksflutninga á ferðamönnum sem er ávallt virðisaukaskattsskylt.



Sala á þjónustu til erlendra aðila

Tillagan er sú að sala á þjónustu til erlends fyrirtækis verður óskattskyld. Í dag skiptir máli hvar þjónustan er nýtt sérstaklega hvað varðar óskattskylda kaupendur. Til að skýra þetta frekar myndi breytingin leiða til þess t.d. að ef íslensk lögfræðistofa selur þjónustu til dansks fyrirtækis vegna innheimtu á kröfu á íslenskan aðila yrði slík þjónusta óskattskyld. Í dag skiptir máli hvort kaupandinn gæti talið vsk. af kaupunum til innskatts, en það skiptir þá ekki lengur máli. Þannig verða kaup t.d. erlendra banka, tryggingafélaga og annarra aðila sem eru undanþegnir virðisaukaskatti á þjónustu íslenskra aðila ávallt án virðisaukaskatts.



Litið til OECD og ESB

Í greinargerð með frumvarpinu er sérstaklega minnt á samræmi við OECD og ESB. Síðan segir að lögð sé áhersla á að bregðast við þeim lagabreytingum um virðisaukaskatt sem hafa verið innleiddar undanfarið í helstu viðskiptalöndum okkar. Ekki er alveg ljóst hvað átt er við með þessum athugasemdum því t.d. hafa Danir farið aðra leið. Samkvæmt dönsku vsk. lögunum ber t.d. danskri lögfræðistofu að innheimta virðisaukaskatt af þjónustu veittri íslenskum banka vegna kröfu á danskan aðila; þar sem þjónustan er nýtt í Danmörku. Ef aftur á móti kaupandinn er innan ESB er almennt enginn skattur þar sem kaupandinn er ábyrgur. Hér er ólíku saman að jafna við íslenskt umhverfi enda sérreglur í gildi á innri markaði ESB.

Höfundur er lögmaður og FKA-félagskona




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×