Skoðun

Bíllaus byggð

Hildur Björnsdóttir skrifar
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík vill reisa blómlega byggð í Örfirisey. Á svæðinu þrífst nú verslun og þjónusta en íbúabyggð er ekki leyfð. Þessu viljum við breyta. Við viljum myndarlega þróun byggðar  með fjölbreyttum búsetukostum og sérstakri áherslu á lausnir fyrir fyrstu kaupendur.

Við leggjum til að Örfirisey verði bíllaus byggð með áherslu á mannvænt borgarumhverfi. Við viljum skapa fjölbreytta borg fyrir fjölbreytt fólk. Borg sem mætir alls kyns þörfum. Borg sem býður borgarbúum frelsi og val um búsetukosti. Aukinn fjöldi fólks sýnir bíllausum lífsstíl áhuga. Bíllaus Örfirisey væri heillandi valkostur fyrir marga. Vistvænt hverfi með grænum áherslum.

Meirihluti borgarlands fer í dag undir bílaumferð og bílastæði. Minnihluti undir byggð og almannarými. Án bílaumferðar skapast rými fyrir aukið mannlíf, meiri byggð og fleiri græn svæði – meira andrými. Vel mætti hugsa sér 4.000 íbúða bíllaust hverfi. Áhersla væri á mannvænt umhverfi, lágreista byggð og vistvæna samgöngumáta. Umhverfi þar sem fólki líður vel.

Vissulega yrði ráðist í hugmyndasamkeppni um skipulag svæðisins en við leggjum fram tillögu svo fólk fái mynd af því hvernig svæðið gæti litið út.

Örfirisey mætti stækka með bogadreginni landfyllingu þar sem síki myndu skapa fallega stemningu. Fjólublár ás sýnir fjölbreyttar hjóla- og gönguleiðir um hverfið og rafmagnsstrætó gengur hringsælis um hverfið eftir rauðum ás. Enn væri opið fyrir bílaumferð á bláum ás fyrir sjávarútveginn á svæðinu. Fjólubláir reitir marka lifandi torg þar sem fólk mætist og á samskipti.

Við jaðar hverfisins væri bílastæðahús á gráum reit. Íbúum hverfisins yrði þannig gert kleift að eiga bíl en mesta áherslan yrði á svokallaða deilibíla. Bílar færu þannig ekki inn í hverfið og gert væri ráð fyrir meirihluta íbúa í bíllausum lífstíl. Örfirisey yrði tengd við miðbæinn með göngu- og hjólabrú yfir til Hörpu. Brúin yrði opnanleg svo hafnsækin starfsemi á svæðinu yrði ekki fyrir raski.



Í Örfirisey viljum við fjölbreyttar og spennandi lausnir fyrir ungt fólk. Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík hyggst úthluta hagstæðum lóðum í Örfirisey til byggingar lítilla og hagkvæmra eininga fyrir fyrstu kaupendur. Vel mætti hugsa sér búsetukosti með litlu sérrými en stærri sameiginlegri aðstöðu sem ýtir undir samskipti íbúanna. Slíkt búsetuform á sér fjölmargar erlendar fyrirmyndir. Við viljum sniðugar og hagkvæmar lausnir. Við ætlum að styðja betur við ungt fólk og aðstoða það við fyrstu skref inn á húsnæðismarkað.

Við viljum vistvæna og græna Örfirisey – bíllausa byggð með áherslu á mannvænt umhverfi og mannleg samskipti. Við viljum hverfi sem er sjálfbært um verslun og þjónustu - með blómlegu mannlífi. Umhverfisvæna byggð þar sem fólki líður vel.

Hildur Björnsdóttir skipar 2. sæti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. 





Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×