Skoðun

Hvers virði er ímynd Íslands fyrir sjávarútveg og landbúnað?

Guðný Káradóttir skrifar
Ísland nýtur mikillar velvildar um þessar mundir. Landið þykir áhugavert og eftirsótt á svo margan hátt; fólk hefur áhuga á að heimsækja Ísland og segja frá upplifun sinni. Þetta skapar sóknarfæri fyrir íslenskar afurðir úr sjó og af landi til frekari verðmætasköpunar.

Nýir drifkraftar í kauphegðun

Það er fróðlegt að rýna í breytingar á gildismati og viðhorfi neytenda til að átta sig á breytingum á kauphegðun og eftirspurn. Þróunin hefur verið í þá átt að fólk sækist síður eftir að eignast hluti og deilir frekar eða samnýtir. Á sama tíma sækjast neytendur í vaxandi mæli eftir upplifun.

Samkvæmt nýlegri greiningu Deloitte endurspeglast þessi viðhorf hjá stórum hluta neytenda við val á matvælum. Meðvitaðir neytendur hugsa um hvaða áhrif hegðun þeirra hefur á umhverfi og samfélag. Þeir vilja vita hvar vörur sem þeir kaupa eru framleiddar eða jafnvel hannaðar, og það skiptir þá jafnvel meira máli en atriði eins og verð, tegund eða gerð vörunnar. Eftirspurn eftir lífrænum matvælum fer vaxandi, ár frá ári. Hollusta og hreinleiki skipta máli. Aldamótakynslóðin er tilbúin að greiða meira fyrir ferskan og heilsusamlegan mat og leggur töluvert á sig til að finna slíkar afurðir.

Tækniþróun er sterkur drifkraftur og leikur stórt hlutverk í kaupákvörðun neytenda sem og möguleikum framleiðenda til að ná til neytenda. Notkun farsíma og samfélagsmiðla vex hratt og innkaup í gegnum internetið verða auðveldari. Áskorunin fyrir framleiðendur felst í að nýta sér þetta í markaðssetningu á erlendum mörkuðum og til að ná til erlendra ferðamanna á Íslandi.

Fólk deilir upplifun sinni og miðlar upplýsingum um vörur og þjónustu til vina sinna með einum smelli. Það treystir í minna mæli á skilaboð seljenda og gerir kröfur til þeirra sem selja vörur og þjónustu um að nýta sér þessar boðleiðir.



Getur áhugi á Íslandi aukið ­eftirspurn?

Ímynd Íslands fellur vel að kröfum neytenda um umhverfisvæna og ábyrga framleiðslu. Hér eru sóknarfæri fyrir íslenska matvælaframleiðslu og þá sem selja hreinar afurðir úr hafi eða af landi.

Uppruni vöru getur orðið eins konar táknmynd sem neytendur sækjast eftir og vilja tengja sig við. Ekki bara vegna hins eiginlega uppruna, heldur getur uppruni vísað til lífsgilda, svo sem hugmyndafræði við framleiðslu og meðferð hráefna, eða afstöðu til mannréttinda og sjálfbærni.

Við erum skammt á veg komin við að nýta okkur almennan áhuga á Íslandi og kröfu neytenda um að þekkja uppruna þeirra matvæla sem þeir kaupa í markaðssetningu erlendis. Við þurfum að fjárfesta meira í markaðsstarfi, segja áhugaverðar sögur og fara nýstárlegar leiðir til að byggja upp vörumerki. Markmiðið ætti að vera að skapa hughrif hjá neytendum svo þeir sækist eftir íslenskum afurðum og verði tilbúnir til að greiða hærra verð fyrir þær. Umhverfið og almenn þróun er okkur Íslendingum því hagstæð.

Uppruni er mikilvægur aðgreiningarþáttur í samkeppni, sem tengist ekki bara staðreyndum heldur líka tilfinningatengslum við uppruna vörunnar.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×