Fjöldi fíkniefnamála í Laugardalnum Kjartan Kjartansson skrifar 23. júní 2018 07:40 Secret Solstice-tónlistarhátíðin stendur nú yfir í Laugardalnum. Vísir/Jóhanna
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir að afskipti hafi verið höfð af rúmlega þrjátíu einstaklingum vegna vörslu fíkniefna í Laugardalnum þar sem tónlistarhátíðin Secret Solstice fer fram í gærkvöldi og í nótt. Þá komu upp nokkur mál sem tengjast líkamsárásum. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir nóttina. Stöð 2 greindi frá því í gær að foreldrar hefðu áhyggjur af fíkniefnaneyslu barna sinna á tónlistarhátíðinni og settu spurningarmerki við öryggisgæslu. Þar hefði orðið vart við talsverða kannabisneyslu og unglingadrykkju. Utan hátíðarinnar var töluvert um ölvunar- og fíkniefnaakstur í borginni í gærkvöldi og í nótt og voru nokkrir ökumenn vistaður í fangageymslu lögreglu vegna ástands síns. Í Eskihlíð í Reykjavík var innbrotsþjófur handtekinn á fjórða tímanum í nótt. Maðurinn er sagður hafa farið inn um glugga íbúðar og stóð hann þar á gólfinu þegar íbúar komu að honum. Þjófurinn var vistaður í fangageymslu lögreglu vegna rannsóknar málsins. Þá voru tveir menn handteknir við Hamraborg í Kópavogi fyrir að ráðast á dyravörð á veitingahúsi. Þeir fengu einnig að gista fangageymslu lögreglu.
Lögreglumál Secret Solstice Tengdar fréttir Birgir Hákon: „Ég er ekki fyrirmynd, foreldrar eru fyrirmynd “ Rapparinn Birgir Hákon gefur út lag og myndband sem gefur hlustendum sýn í hans eigin raunveruleika. 22. júní 2018 16:30 Foreldrar hafa áhyggjur af vímuefnanotkun á Secret Solstice 22. júní 2018 19:00 Mest lesið Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Erlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Innlent Ráku háttsettan herforingja sem sakaður var um lygar Erlent Enginn drukkinn jólasveinn í jólaþorpi Hafnarfjarðar Innlent Frægasti köttur landsins týndur Innlent Sundhnúksgígaröðin að verða búin Innlent Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Innlent Engar ruslatunnur í Grindavík Innlent Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Innlent Fleiri fréttir Fyrstu lotu læknaverkfalls aflýst Á bak við auglýsingarnar um Dag en skráður í Samfylkinguna Ræktar banana í Hafnarfirði með góðum árangri Frægasti köttur landsins týndur Enginn drukkinn jólasveinn í jólaþorpi Hafnarfjarðar Engar ruslatunnur í Grindavík Kapphlaup við tímann í Karphúsinu og eggjaskortur í aðdraganda jóla Í símanum undir stýri og bíllinn mikið skemmdur Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Biskup fagnar hækkun sóknargjalda Sundhnúksgígaröðin að verða búin Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Breyting á eldgosinu og stór dagur í Karphúsinu Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Minni virkni í miðgígnum Vextir og kosningar í Sprengisandi Réttindalausir stútar á ferðinni Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Ók á ljósastaur við Grensásveg Eldur kviknaði í bíl í Mosfellsbæ Læknar fara þokkalega bjartsýnir inn í morgundaginn Viðreisn stærst samkvæmt nýrri kosningaspá en mjótt á munum Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt til niðurskurð á hverju ári Hefur gefið Landgræðslunni 26 milljónir króna í formi fræja Mikilvægt að Bláa lónið geti opnað sem fyrst Hvetja íbúa Suðurnesja til að spara heita vatnið Varnaraðgerðir í Svartsengi og umdeild yfirhalning hjá Jaguar Ísland virðir handtökuskipan á hendur Netanjahú Sjá meira
Birgir Hákon: „Ég er ekki fyrirmynd, foreldrar eru fyrirmynd “ Rapparinn Birgir Hákon gefur út lag og myndband sem gefur hlustendum sýn í hans eigin raunveruleika. 22. júní 2018 16:30