Skoðun

Lestrargaldur allt árið

Guðbjörg R. Þórisdóttir skrifar
Nú er farið að síga á seinni hluta sumarleyfa nemenda um allt land og ekki seinna vænna að taka sér bók í hönd og hita sig dálítið upp fyrir haustið. Líklegt er að yfir 90% grunnskólanema landsins fari í lesfimipróf í september og þá er gott að vera búinn að æfa sig vel áður en skólinn byrjar því lestrarfærnin, eins og annað sem ekki er þjálfað reglulega, dalar ef lítið eða ekkert er lesið. Ef ekkert hefur verið lesið í þrjá mánuði má reikna með afturför sem því nemur og því eru sumir nemendur ekki búnir að ná fyrri færni aftur fyrr en í nóvember. Fæstir verða glaðir með það að sýna lakari árangur að hausti en að vori svo það er um að gera að spýta í lófana, drífa sig á bókasafnið eða dusta rykið af bókinni sem liggur undir rúmi og byrjað var að lesa. Gott er að lesa í korter á dag og þar sem það eru 96 korter í einum sólarhring verða vonandi fæstir í vandræðum með að finna sér tíma til að lesa. Einnig er gott að lesa fyrstu eða síðustu blaðsíðuna upphátt tvisvar fyrir sjálfan sig á meðan verið er að komast í gang en annars getur hver og einn þjálfað sig eins og honum eða henni líkar best. Lykilatriðið er að lesa og þá er líklegt að allir verði sáttir við frammistöðu sína á lesfimiprófinu í haust.

Góð frammistaða á lesfimiprófum ætti þó ekki að vera eina ástæðan fyrir sumarlestri eða lestri allan ársins hring því reglulegur lestur hefur marga kosti í för með sér. Þeir sem eru duglegir að lesa hafa betri málþroska, þeir eru flinkari málnotendur þar sem þeir hafa meiri orðaforða og betri lesskilning en þeir sem lesa lítið eða ekkert. Duglegir lesarar þekkja ritmálið einnig vel og eru því oftast betri í ritun, stafsetningu og málfræði en þeir sem lesa sjaldan. Og þar sem stór hluti náms fer fram í gegnum tungumálið skiptir miklu máli að kunna það vel. Orð eru nefnilega verkfæri hugsunarinnar og sá sem á vel búna verkfærakistu getur byggt flóknari hluti og leyst fjölbreyttari verkefni en sá sem á bara hamar. Svo má ekki gleyma galdri ritmálsins þar sem heimur höfundarins og heimur lesarans mætast. Þar verður til nokkurs konar samtal á forsendum beggja og þegar vel tekst til flytur textinn lesarann á slóðir sem hann þekkir ekki, hann öðlast hlutdeild í reynslu annarra og umburðarlyndi, samhygð og sannleika í veganesti sem endist út lífið. Kostir lestrar eru því óteljandi og því er um að gera að finna nú heppilegt korter til að taka sér bók í hönd!

Höfundur er sérfræðingur í læsi hjá Menntamálastofnun




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×