Skoðun

Úlfur, úlfur

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Fundarhöld í Ráðhúsi Reykjavíkur frá kosningunum í vor hafa ekki verið til þess fallin að auka tiltrú almennings á kjörnum fulltrúum. Tilfinningin er sú að öll áhersla sé á leiksýningar og fjölmiðlauppákomur á kostnað hins efnislega.

Auðvitað er það svo að minnihlutinn á hverjum tíma hefur það mikilvæga hlutverk að veita meirihlutanum aðhald.

Ekki er vanþörf á í Reykjavík. Borgin hefur safnað skuldum í mesta tekjugóðæri Íslandssögunnar. Tekjutuskan hefur verið undin til hins ýtrasta. Meirihlutinn hefur skorast undan ábyrgð á sjálfsögðu aðhaldi í borgarrekstrinum og heldur ekki bara útsvari í hæsta lögleyfða marki heldur hefur hækkað tekjustofna með ýmiss konar sjónhverfingum.

Þjónustugjöld Orkuveitunnar eru í hæstu hæðum. Fasteignagjöld hafa hækkað upp úr öllu valdi, heimilum og ekki síður fyrirtækjum til mikils ama. Í Reykjavík er ekki sérstaklega vinveitt umhverfi til fyrirtækjareksturs. Tap er af kjarnarekstri borgarinnar.

Við þetta má bæta stanslausu hiksti á ýmiss konar þjónustu á vegum borgarinnar. Húsnæðisskortur er áþreifanlegur, heimilislausum fjölgar og vandræðagangur við mönnun leikskóla er endurtekið efni. Þrifnaði á götum og torgum er ábótavant.

Með þetta í huga ættu tækifæri til öflugs aðhalds af hálfu minnihlutans að vera næg. Það hefur honum hins vegar algerlega mistekist. Stærsti andstöðuflokkurinn, Sjálfstæðisflokkurinn, ákvað af óskiljanlegum ástæðum að ganga til minnihlutasamstarfs við hina flokkana. Ekki er gott að giska á hvernig samstarfið ætti að gagnast flokknum, en utan frá lítur út fyrir að um hávaðabandalag sé að ræða. Fyrir hópnum fara oddvitar Flokks fólksins, Miðflokksins og loks Marta Guðjónsdóttir sem var fyrir neðan miðjan lista Sjálfstæðismanna.

Sú síðastnefnda hefur einkum vakið athygli fyrir furðuleg upphlaup sem í öllum tilvikum snúast um aukaatriði fremur en merg málsins. Stóryrði um leka og svipbrigði fremur en efnisatriði mála.

Þessi sífelldu upphlaup og stóryrði valda því að allar aðgerðir minnihlutans missa marks. Farsinn yfirtekur sviðið. Málefnaleg gagnrýni á borð við þá að minnihlutinn fái hvorki tíma né rúm til almennilegs undirbúnings fyrir fundi sem snúast um mikla hagsmuni borgaranna eru stimpluð sem einn eitt uppþotið. Úlfur, úlfur og ekki að ástæðulausu.

Á þessu þarf að taka. Oddvitinn þarf að hafa stjórn á liði sínu. Blaðskellandi biðukollur eiga ekki að vera í forsvari alvarlegs stjórnmálaafls. Borgin þarf á öflugum og málefnalegum minnihluta að halda.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×