Innlent

Enn ekkert spurst til þremenninganna

Þórhildur Erla Pálsdóttir skrifar
Mennirnir þrír sem leitað er að.
Mennirnir þrír sem leitað er að. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur enn ekki fundið mennina þrjá sem lýst var eftir nú fyrir helgi. Eins hafa engar ábendingar borist. Þetta kemur fram í samtali fréttastofu við lögreglu.

Samkvæmt heimildum fréttastofu eru mennirnir grunaðir um að hafa stolið háum fjárhæðum af eldra fólki um síðustu helgi.

Ef einhverjir þekkja til mannanna, eða vita hvar þá er að finna, eru hinir sömu einnig beðnir um að hringja í lögregluna, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið [email protected] eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×