Skoðun

Það sem þeir sögðu

Árni Pétur Hilmarsson skrifar
Ég hef áhyggjur yfir áformum um stórfellda aukningu á laxeldi í opnum sjókvíum. Ég er fæddur og uppalinn í dreifbýli og hef mikla samúð með hagsmunum landsbyggðar og uppbyggingu og fjölgun starfa. En það má ekki vera á kostnað annarra og ekki á kostnað náttúrunnar.

Ég flutti aftur heim í sveit með fjölskylduna mína vegna þess að ég hef hagsmuni af laxveiði. Ég er af sjöttu kynslóð í Nesi sem byggir afkomu sína á laxveiðihlunnindum og vinn sjálfur á sumrin við leiðsögn í laxveiði. Þetta eru verðmæti og hefðir sem ég vil gjarnan koma áfram til afkomenda minna en er nú ógnað af eldi á laxi af norskum uppruna í opnum sjókvíum við Ísland.

Ég tel að áhyggjur mínar séu réttmætar í ljósi þess hvað talsmenn sjókvíaeldisfyrirtækjanna sögðu um starfsemi sína og svo þess sem hefur gerst í raun og veru.

Þeir sögðu að það yrði engin lús.

Lúsafárið er svo slæmt að það hefur margoft þurft að hella eitri í sjó og sár á fiski í kvíum eru svo slæm að dýralæknar óttast um velferð þeirra.

Þeir sögðu að það yrði engin mengun.

Arnarlax fær ekki alþjóðlega vottun um sjálfbæra sjávarvöruframleiðslu vegna ástands botndýralífs og mengunar nálægt sjókvíunum. Þetta staðfesta innlendar og erlendar rannsóknarstofnanir.

Þeir sögðu að kvíarnar væru svo góðar að fiskur myndi ekki sleppa.

Í sumar veiddust eldisfiskar í mörg hundruð km fjarlægð frá eldis­svæðum. Eldishrygna sem var að því komin að hrygna var veidd í Eyjafjarðará. Þetta er bara toppurinn á ísjakanum segir sérfræðingur hjá Hafrannsóknastofnun. Arnarlax veit ekki enn hversu margir fiskar sluppu eftir að göt komu á kví með 150 þúsund fiskum í Tálknafirði í júlí.

Þeir sögðu að það yrði ekki erfðablöndun.

Hafró hefur nýlega staðfest erfðablöndun eldislax og náttúrulegs lax í laxastofnum á Vestfjörðum.

Þeir sögðust ætla að hvíla eldissvæðin.

Arnarlax hefur nú á fimmta mánuð verið brotlegt við starfsleyfi sitt sem segir til um að hvíla skuli eldissvæði að lágmarki sex til átta mánuði. Félagið virti þetta að vettugi og setti út fisk á svæðið þremur mánuðum eftir að slátrað var upp úr kví á því.

Þeir segja að landeldi sé ekki raunhæfur valkostur í stað eldis í opnum sjókvíum.

Samt er stundað umfangsmikið og arðbært landeldi hér á landi, til dæmis á vegum Matorku og Stolt Sea Farm á Reykjanesi og Samherja fiskeldis.

Þeir segja að lífríkinu stafi engin hætta af laxeldi í opnum sjókvíum.

Norðmenn með alla sína reynslu hafa ekki hugmynd um hvaða áhrif allt lúsaeitrið og mengunin frá kvíunum hefur á villta nytjastofna þar við land. Rækjan er hrunin við Noreg og Norðmenn voru nú í september að deila út hundruðum milljóna til rannsókna á hver áhrif laxeldis í opnum sjókvíum hefur á þorskstofninn.

Það er glapræði eða fáviska að loka augunum fyrir þessum staðreyndum. Eða bara tær fyrirlitning á íslenskri náttúru.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×